Jökull - 01.12.1992, Side 111
vatnahellunni og í hiaupinu um haustið var í fyrsta sinn unnt
að mæla sighraða íshellunnar, - með samanburði við mældan
loftþrýsting á Grímsfjalli - og meta þannig vatnsmagn sem
fór úr Vötnunum. Þetta starf var styrkt af Vegagerð ríkisins.
Aukin nákvæmni fengist í vatnshæðarmælingamar í
Grímsvötnum ef þrýstiskynjara væri komið fyrir á botni
þeirra svo að vatnsþrýstingur yrði mældur í stað loftþrýst-
ings. Rætt er um að sökkva þrýstimæli niður um borholu
og tengja hann við mæli, sem yrði í mastri á hellunni. Síðar
yrðu aflestrar sendir upp á Grímsfjall og þaðan til byggða.
Þá yrði unnt að fylgjast stöðugt með því hve hátt er í Gríms-
vötnum og í hlaupunum sæist frá degi til dags hve mikið
vatn hefur mnnið úr þeim, því að nú þekkjum við vel stærð
Grímsvatna og lögun vatnsgeymisins þar. Það myndi auðv-
elda ákvarðanir um viðbrögð ef hætta virðist á að hlaup valdi
tjóni á vegum og vamargörðum á Skeiðarársandi.
Mœlingar á jökulsporðum.
Mælingarájökulsporðum voru unnarmeð svipuðu sniði
og undanfarin ár og hafði Oddur Sigurðsson umsjón með
þeim. Jöklamælingamennmældu á 39 sporðum, 25 hopuðu,
8 gengu fram og 3 stóðu í stað, en óvíst um 3. Stórviðburður
ársins var framhlaup Skeiðarárjökuls, um allt að 1 km svo að
hann lagði undir sig um 10 km2 landsvæði á Skeiðarársandi
°g sprakk upp alla leið frá sporði langleiðina upp að rótum
Grímsfjalls, á 1000 km2 svæði.
Nú eru um 60 ár frá því Jón Eyþórssonhóf reglubundn-
ar mælingar á jökulsporðum. Stefnt er að því að birta nú
samantekt um þær í Jökli og skrifa þar einnig um þá menn
sem unnið hafa að þessum mælingar víðsvegar um land.
Rannsóknanefndin taka það mál upp á næstunni.
Issjármœlingar á Breiðamerkurjökli, Síðujökli og Mýr-
dalsjökli.
Loks má geta þess hér að á liðnu ári unnu félagar á
Raunvísindastofnun að íssjármælingum á Breiðamerkurjökli
°g Síðujökli í samvinnu við Vegagerð og Landsvirkjun og á
Mýrdalsjökli með styrk frá Vísindasjóði. Á því ári sem nú er
haflð mun unnið úr mælingunum og væntanlega verður unnt
að sýna fljótlega hér á félagsfundum landslag undir þessum
jöklum.
fundir
Að loknum aðalfundarstörfum 26. febrúar sýndi Gér-
ard R. Delavault myndir frá Kverkfjöllum og úr ferðum á
Vatnajökul og víðar. Vorfundur félagsins var síðan haldinn
30- apríl. Þar flutti Oddur Sigurðsson fyrirlestur sem hann
nefndi „Hvemig kemst Hofsjökull af ?,“ en þargreindi hann
frá mælingum á afkomu jökulsins undanfarin 3 ár. Einar
K. Stefánsson sagði einnig í máli og myndum frá klifri á
fjallið McKinley (6195 m y.s.) í Alaska vorið 1989 og á
fjöllin Lenin (7134 m y.s.) og Kommunismus (7495 m y.s.)
í Sovétríkjunum sumarið 1991. Á haustfundi sýndi Oddur
Sigurðsson myndir af framhlaupi Skeiðarárjökul og ég sagði
ferðasögu frá tíu dögum í Tíbet.
ÚTGÁFA JÖKULS
Fertugasti árgangur Jökuls, veglegt 200 bls. rit kom út
í lok árs. Umbrot fór fram við Raunvísindastofnun og að
því vann Vigdís Harðardóttir, jarðfræðingur, með tilsögn frá
Marteini Sverrissyni, verkfræðingi. Bryndís Brandsdóttir
vann geysimikið starf við útgáfu þessa heftis og ég færi
henni þakkir félagsins fyrir það. Á endasprettinum unnum
við Leó Kristjánsson að því að koma ritinu gegnum prent-
smiðjuna. Næsti árgangur 1991 er kominn alllangt á veg, en
honum ritstýrum við Leó og Bryndís Brandsdóttir. Stefnt
er að því að hann komi út fyrir sumarið. Bókabúð Máls
og Menningar hefur aðstoðað okkur við dreifingu Jökuls til
erlendra áskrifenda en Háskólabókasafn fékk nokkur eintök
af Jökli til þess að nota í skiptum fyrir erlend fræðirit.
FRÉTTABRÉF
Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, annaðist útgáfu
Fréttabréfsins og kom það reglulega út.
GJAFIR TIL FÉLAGSINS
Bjöm Sverrisson, sonarsonur Jóns Eyþórssonar, sendi
félaginu peningagjöf á árinu til minningar um afa sinn og
Gissur Símonarson styrkti vorferð á sama hátt. Tveir bíl-
stjórar hjá Guðmundi Jónassyni h.f., Guðmundur Gunnars-
son og Jónas Pálsson gáfu vinnu við akstur í haustferð fé-
lagsins í Jökulheima og GunnarGuðmundsson, forstjóri fyr-
irtækisins, gaf einnig ókeypis afnot af bílunum. Jöklarann-
sóknafélag Islands þakkar öllum þessum mönnum veittan
stuðning.
SKÁLAMÁL
Skálanefnd gerði á árinu ítarleg áætlun um viðhald skála
og framkvæmdir. Þar kemur fram að Kirkjuból er í góðu
ástandi, en stefnt er að því að lakka hann að innan. Borið
var á Kverkfjallaskálann, sem er í góðu lagi, en talið nauð-
synlegt að setja slitsterkt efni á gólf vegna þess hve mikill
leir berst þar inn, smíða stærri pall við innganginn og setja
JÖKULL, No. 42, 1992 109