Jökull

Útgáva

Jökull - 01.12.1993, Síða 56

Jökull - 01.12.1993, Síða 56
í hinum kanadísku mælingum 1965 var halli seg- ulsviðsins (I) á bilinu 75-77 gráður, meiri norðan lands en sunnan. Virðast ekki hafa orðið verulegar breyting- ar á honum allt frá 18. öld samkvæmt fyrirliggjandi mælingum, en athugun á þeim þætti verður látin bíða betri tíma. SÍRITANDI MÆLINGAR Síritandi mælingu á flökti áttavita má gera með hjálp ljósgeisla, er endurkastast frá spegli á áttavitanál- inni á ljósmyndapappír. Ekki hef ég hugað að því hvenær slíkar mælingar kunni fyrst að hafa verið gerð- ar hér á landi. Allavega gerðu danskur og norskurleið- angur hingað um síðustu aldamót þess konar mæling- ar um nokkurra mánaða skeið, og síðan Þjóðverjarnir, sem áður voru nefndir. Þorkell Þorkelsson veðurstofu- stjóri setti upp dönsk mælitæki til samfelldra mælinga nálægt Reykjavík;, fyrst í um tíu mánuði 1932 í tengsl- um við alþjóðlegar rannsóknir á pólsvæðunum, og aft- ur í fjóra mánuði 1937. Þorbjörn Sigurgeirsson kom svo af mikilli atorku upp segulmælingastöð í Leirvogi í Mosfellssveit, er hóf starfsemi síðsumars 1957. Hef- ur sú stöð verið starfrækt samfellt þaðan í frá, lengst af á vegum Háskóla Islands. Veita mælingar henn- ar mjög mikilvægar upplýsingar um jarðsegulsviðið, ekki síst þær breytingar þess sem tengjast norðurljós- um og skyldum háloftafyrirbrigðum. Síðan samfelldar mælingar á segulsviðinu hófust hér 1957, hefur misvísunin í segulmælingastöðinni minnkað eins og sýnt er á 7. mynd. Að meðaltali var minnkunin um 5’ á ári frá 1958-72, en herti svo nokkuð snögglega á sér og hefur verið um 12’ á ári að með- altali síðan. Frá árinu 1965 hafa verið gerðar árlega mælingar á föstum stöðum úti á landi og er minnkun misvísunarinnar þar svipuð (Þorsteinn Sæmundsson 1988). NÚVERANDI MISVÍSUN Með því að nota niðurstöður segulmælinga í Leir- vogi og úti á landi til að leiðrétta kanadísku flugmæl- ingarnar frá 1965, má áætla meðalmisvísun sviðsins á hverju ári. Önnur aðferð sem nota má til að reikna hvert sviðið á að vera hér, er sú að beita alþjóðleg- um formúlum um styrk og stefnu sviðsins hvarvetna á jörðinni (International Geomagnetic Reference Field). Þær formúlur eru leiddar út úr öllum tiltækum mæling- um síðustu ára, m.a. úr gervihnöttum. Formúlunum ber ágætlega saman við þá misvísun sem fengin er með fyrrnefndu aðferðinni, svo hvergi á landinu og landgrunninu munar meira en hálfri gráðu. 8. mynd (Jan Wuster, skrifl. uppl. 1986) sýnir vestlæga mis- vísun sviðsins á miðju ári 1986 samkvæmt alþjóð- legu formúlunum. Gæta þarf að því að rugla ekki stefnu jafnskekkjulínanna (isogonics), sem er norð- norðaustlæg hér, saman við segulstefnuna sjálfa. NOTKUN ÁTTAVITA Á ÍSLANDI Þess er að gæta við notkun áttavita, að berg hefur áhrif á stefnu nálarinnar. Fara áhrifin mjög eftir með- alstyrkleik segulmögnunarinnar í berginu, en aukast einnig þar sem landslag er óslétt. Hér á landi er segul- mögnun bergs með því sterkasta sem gerist, ef frá eru taldir neðansjávarhryggir og járnnámusvæði. Afleið- ingu þessa er ekki hægt að lýsa betur en með orðum Löwenörns (1821, bls. 8); "... alle Observationer, foretagne paa land med Magnetnaalen, henhörende til at bestemme Misviisningen, ere aldeles upaalidelige og uefterrettelige, formedelst de jernagtige og vul- kaniske Materier, som Landet er opfyldt med, saa at, naar man flytter et Compas paa Landet, blot et kort Stykke, viser det forskjellig paa det ene og det andet Sted, saa at Compasset endog er forvirret i Havnene og nær Kystene...." Áhrifin dofna allhratt með fjarlægð frá berginu, til dæmis í öfugu hlutfalli við fjarlægðina í þriðja veldi frá miðju kúlulaga hlutar sem allur hefur sama segulmögnunarstyrk. Hinsvegar eru hérlendis til að sama skapi stórir bergmassar með mikla segulmögn- un. Trausti Einarsson benti á það þegar á árinu 1937, að gangar í berggrunni trufli áttavita; síðar hafa seg- ulmælingar á jörðu niðri mjög verið notaðar hérlendis til að leita að göngum og jarðhita tengdum þeim. Svo Reykjavík sé tekin sem dæmi, þá mældi Þorsteinn Sæmundsson (1974) á árunum 1971-72 misvísunina víða í borgarlandinu og Kollafirði, og reyndi hann að velja hagstæða staði. Reyndust niðurstöðurnar flökta um allt að 8° frá meðalgildi. A sléttlendi með nokk- urra metra þykkum jarðvegi, möl eða sandi eru áhrif bergsins á misvísunina þó væntanlega sjaldan meiri en 54 JÖKULL,No. 43, 1993
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar: 1. tölublað (01.12.1993)
https://timarit.is/issue/387311

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

1. tölublað (01.12.1993)

Gongd: