Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2009, Side 6

Tölvumál - 01.11.2009, Side 6
6 | T Ö L V U M Á L Frá hugmynd til framkvæmdar Það er ekki nóg að fá góða hugmynd að nýjung, það þarf að taka hana áfram og setja hana í framkvæmd til að nýsköpun eigi sér stað. Til að byrja með þarf að fullmóta hugmyndina og svo þarf að taka ákvörðun um hvort leggja eigi tíma og fjármagn í að hringda hugmyndinni í framkvæmd og sjá hvort markaðurinn viðurkenni útfærslu hugmyndarinnar og gefi henni lífsmöguleika. Sá stuðningur sem boðið er upp á í tengslum við nýsköpun tengist framkvæmdaaðilum, umfangi og uppruna verkefnisins. Fjármögnun Það sem flestir álíta erfiðasta hjalla nýsköpunar er fjármögnun. Svo hægt sé að hrinda hugmynd í framkvæmd þarf að fá fjármögnun til þess að geta lagt vinnu í að útfæra næstu skref og keypt þau aðföng sem reynast nauðsynleg. Þörf fyrir fjármögnun getur komið upp á ólíkum skrefum í nýsköpuninni, það getur verið á fyrstu stigum þegar verið er að móta almennilega vöruna, þegar hugmyndin er orðin að sprota og farið er að stíga fyrstu skrefin í markaðssetningu og öflun viðskiptavina, eða þegar framleiðsla og sala er komin á fullt skrið. Margvísleg úrræði eru í boði fyrir sprotafyrirtæki, hægt er að sækja um styrki frá ýmsum sjóðum eða fá inn fjárfesta. Námskeið og ráðgjöf Stuðningsaðilar nýsköpunar eru ekki eingöngu í því að veita fjármagn til sprotafyrirtækja. Hægt er að sækja námskeið um ákveðna þætti sem sprotafyrirtæki standa frammi fyrir, til að mynda markaðssetningu, einnig er hægt að fá stuðningsþjónustu í formi ráðgjafar eða jafnvel handleiðslu. Þó svo að hugmyndirnar sem sprotafyrirtæki byggjast á séu ólíkar, þá þurfa þau að fara í gegnum sömu skrefin og þroskann. Því er gott að geta nýtt sér þá ráðgjöf og handleiðslu sem í boði er fyrir sprotafyrirtæki. Samantekt þeirrar stuðningsþjónustu sem kynnt var á ráðstefnunni er sýnd í töflu á næstu síðu. Nýsköpun getur verið margvísleg og í ólíku formi þó í grunninn megi líta á hana sem afleiðingu hugmyndar. Nýsköpun getur til að mynda verið afleiðing rannsóknaverkefnis, fæðst út frá hugmynd einstaklings um vöru eða þjónustu eða komið sem bein markaðseftirspurn. Frá því að hugmynd um nýjung fæðist yfir í að hún er fullmótuð og sett á markað er langur og oft strangur vegur. Á Íslandi er margvíslegt stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun og hægt er að sækja námskeið, fá ráðgjöf og handleiðslu sem og að sækja um styrki eða annars konar fjármögnun til framkvæmdar nýsköpunar. Þann 12. maí 2009 var haldinn kynningarfundur á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, RANNÍS, Útflutningsráðs og Samtaka iðnaðarins ásamt Hátækni- og sprotavettvangi þar sem veitt var yfirsýn um stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi Júlía Pálmadóttir Sighvats, langtímavarsla rafrænna gagna hjá Þjóðskjalasafni Íslands Sá stuðningur sem boðið er upp á í tengslum við nýsköpun tengist framkvæmdaaðilum, umfangi og uppruna verkefnisins.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.