Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2009, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.11.2009, Blaðsíða 15
T Ö L V U M Á L | 1 5 íslenskra hljómlistarmanna (FÍH). Samningarnir hljóðuðu þannig að Nova myndi útvega alla þá farsíma sem til þurfti við prófun á hugbúnaðinum ásamt því að veita aðgengi að tæknimanni innan fyrirtækisins. Nova myndi einnig sjá um að auglýsa vöruna þegar hún kæmi á markað og sjá alfarið um dreifingu á íslenskum markaði til að byrja með. Félag íslenskra hljómlistarmanna myndi útvega u.þ.b. 20 gítarleikara á mismunandi stigum gítarnámsins til að prófa vöruna fyrir síðustu viðtökuprófun sem framkvæmd yrði áður en hún færi á íslenskan markað. Í apríl 2008 hlaut verkefnið hvatningarverðlaun fyrir þátttöku í frum kvöðla- keppni Innovit ásamt því að komast í 8 liða úrslit keppninnar. Í sama mánuði var umsókn okkar til Tækniþróunarsjóðs Rannís samþykkt og fengum við veglegan styrk til að klára verkefnið. Varan verður að raunveruleika Í maí 2008 lauk meistaraverkefninu formlega en þróunarvinnan hélt áfram yfir sumarið. Í kjölfar Innovit keppninnar var okkur boðið að taka þátt í frumkvöðlakeppni í Danmörku sem ber heitið „Nordic Venture Cup“. Þar gafst okkur tækifæri á því að hitta annað fólk í svipuðum hugleiðingum og mynda mikilvæg tengsl. Í ágúst 2008 varð til fyrsta beta útgáfan af hugbúnaðarlausninni, sem var prófuð með viðskiptavinum Nova. Beta prófunin stóð yfir í 11 sólarhringa og hlóðu 318 viðskiptavinir fyrstu beta útgáfu hugbúnaðarins niður og voru beðnir um að svara spurningalista í lok tímabilsins. Eftir að niðurstöður lágu fyrir fórum við í endurbætur á hugbúnaðinum og í febrúar 2009 var beta útgáfa 2 prófuð með viðskiptavinum Nova og stóð sú prófun yfir í 2 mánuði og endaði með spurningalista líkt og beta prófun 1. Í apríl 2009 var svo lausnin tilbúin á markað. Á markað 4. maí s.l. hófst sala á lausninni fyrir viðskiptavini Nova á kynningarverði. Nú er lausnin einnig aðgengileg viðskiptavinum Vodafone í gegnum Vodafone live og standa viðræður yfir um útgáfu hennar hjá Símanum. Tunerific verður aðgengilegt á heimsmarkaði innan skamms í nýrri vefverslun Nokia sem kallast OVI store. Almenn framtíðarsýn okkar mótast af þeirri staðreynd að farsímar eru að verða litlar og öflugar tölvur sem nota má til ýmissa hluta. Ef vel tekst til með þetta tiltekna verkefni er stefnt á áframhaldandi þróun sjálfstæðra hugbúnaðarlausna (e. stand-alone application) á farsíma sem hlaða má niður af vefnum. Einnig má byggja á þeirri reynslu sem skapast mun við framkvæmd verkefnisins, þá bæði reynslu tengdum markaðsmálum og þróunaraðferðum, og nýta til að þróa fleiri litlar og hagnýtar lausnir fyrir farsíma. Það skortir þekkingu á þessum markaði og með nýjum og öflugri snjallsímum opnast nýir möguleikar sem íslensk hugbúnaðarfyrirtæki þurfa að gefa gaum á næstu árum. Hugmyndin að verkefninu varð til í námskeiðinu Tölvukerfi og markaðsmál Ef vel tekst til með þetta tiltekna verkefni er stefnt á áframhaldandi þróun sjálfstæðra hugbúnaðarlausna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.