Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2009, Blaðsíða 22

Tölvumál - 01.11.2009, Blaðsíða 22
2 2 | T Ö L V U M Á L Mentor hefur sótt inn á sænska markaðinn með góðum árangri og er einnig komið með viðskiptavini í Sviss og Englandi. Mentor hefur unnið Vaxtarsprotann undanfarin 2 ár, titil sem veittur er því sprotafyrirtæki sem vex hraðast. Ísland er heimamarkaður Mentors en vöxturinn er allur á nýjum mörkuðum. Hlutverk fyrirtækisins er að auka árangur í skólastarfi. Menn og mýs er leiðandi fyrirtæki á heimsmarkaði í þróun á netfanga umsjónarkerfum. Sala fyrirtækisins er nær eingöngu erlendis. Helsta vara fyrirtækisins, Men & Mice Suite, samþættir uppsetningu á DNS, DHCP og tengdum IP og hlutneta stillingum. Viðskiptavinir eru fyrst og fremst stór fyrirtæki og símafyrirtæki. Meðal viðskiptavina eru Royal Dutch Shell, T-Mobile, British Telecom, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Xerox o.fl. Tölvumál tóku þá félaga í smá viðtal og lagði fyrir þá nokkrar spurningar. Sp: Hvernig fæddist hugmyndin að Mönnum og músum, var þetta einhver atburður, einstaklingur eða eitthvað annað sem kveikti á hugmyndinni svo ákveðið var að keyra þetta af stað? Upphafleg verkefni fyrirtækisins voru þróun á Mentor kerfinu fyrir skólana og kerfisþýðingar fyrir Radíóbúðina (Apple-umboðið). Þá komumst við í kynni við Sigurð Ásgeirsson og réðum hann í hliðarverkefni við þróun á vörum fyrir alþjóðamarkað. Það var alltaf einbeittur vilji stofnenda að sækja inn á erlenda markaði. Tánni dýft í vatnið Það var árið 1991 sem við byrjuðum að dreifa deilihugbúnaði (shareware) fyrir Macintosh með nokkrum árangri t.a.m Monitor Expander, tóli sem „stækkaði“ skjáinn á Makkanum um 20%. Einnig „Desktop Strip“ sem var nokkurskonar undanfari „TaskBar“ í núverandi MS Windows. Þá vaknaði sú hugmynd að skrifa nafnamiðlara fyrir Mac OS. Við áætluðum að það tæki þrjá mánuði og átján mánuðum síðar var forritið tilbúið. Við settum upp vefsíðu og tilkynningu á netið og fyrr en varði tóku pantanirnar að streyma inn. Sigurður Ásgeirsson smíðaði afar gott forrit fyrir fyrirtækið en hélt síðan til annarra starfa. Sp: Leituðuð þið eftir leiðbeinslu eða aðstoð frá tæknilegum og/eða viðskiptalegum sérfræðingum áður en ákveðið var að steypa sér í Mýs og menn? Við höfðum enga reynslu að byggja á. Það voru fáir í útflutningi hugbúnaðar á þeim tíma. Við létum bara vaða með bjartsýni og trú að leiðarljósi. Sp: Var búin til viðskiptaáætlun og stefnumörkun áður en ákveðið var að halda áfram? Við endurskilgreindum fyrirtækið árið 2000 og hófum smíði á nýrri kynslóð af hugbúnaði, „Men & Mice Suite“. Við gerðum ítarlegar áætlanir, sóttum okkur hlutafé og hófum fjárfestingu fyrir mörg hundruð milljónir króna. Sprotafyrirtæki spretta af bjartsýni og trú Pétur Pétursson og Jón Georg Aðalsteinsson stofnendur Manna og músa (viðtal: Ágúst Valgeirsson) Pétur Pétursson og Jón Georg Aðalsteinsson stofnuðu fyrirtækið Menn og mýs fyrir 19 árum síðan. Upphaflegt verkefni Manna og músa var smíði á upplýsingakerfi fyrir skóla en fljótlega tók þróun á umsjónarkerfum fyrir netföng (DNS og IP) yfir sem aðalverkefnið. Skólahugbúnaðurinn var fluttur yfir í sér fyrirtæki, Mentor, árið 2000. Saman veltu þessi fyrirtæki hálfum milljarði á síðasta ári þar sem 80% veltunnar kemur erlendis frá. Heildar útflutningur á vöru og þjónustu er að nálgast tvo milljarða. Reynslusaga:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.