Tölvumál - 01.11.2009, Side 23
T Ö L V U M Á L | 2 3
Rétt við það „að meikaða“
Allt fór vel af stað og t.a.m. áttum við í ítarlegum viðræðum um samstarf við
stórt bandarískt fyrirtæki. En á síðustu metrunum sprakk „dotcom“ bólan
og ekkert varð úr samningum. Sölustarfið þyngdist og lokaðist fyrir aðgang
að frekara fjármagni. Við skárum fyrirtækið niður í nokkra forritara og við
stofnendurnir tókum að okkur öll sölumálin. Fyrir vikið fékk maður í æð
þarfir markaðarins og þetta var því góður skóli. Lærdómurinn af þessu er að
það er lífsnauðsynlegt fyrir frumkvöðla og stjórnendur sprotafyrirtækja að
„vera sjálfir á kafi í sölumálum“. Öðruvísi er hætt við að fyrirtækið þróist á
skjön við þarfir viðskiptavina.
Það kostaði blóð svita og tár að halda fyrirtækinu lifandi og ljúka vöru-
þróuninni. Það hafðist og í dag hefur Menn og mýs markað sér nafn sem eitt
af 5 - 6 leiðandi fyrirtækjum í heiminum, á markaði með netfangaumsjónar
kerfi.
Sp: Hvernig tóku fjölskyldur og vinir í hugmyndina að stofna fyrirtæki og
framfæra sig með hugbúnaðarþróun?
Við erum frumkvöðlar í eðli okkar. Það kom aldrei annað til greina en að
stofna fyrirtæki. Maður gat leyft sér þetta, nýkominn úr skóla, á meðan
maður hafði ekki fyrir fjölskyldu að sjá. Eiginkonurnar hafa starfað í þessu
með okkur og önnur þeirra, Vilborg Einarsdóttir, leiðir nú Mentor í öflugri
sókn á erlenda markaði.
Sp: Hefur verið leitað eftir styrkjum frá opinberum stofnunum eða
einkaaðilum, og ef svo, hvernig höfðuð þið upp á þessu og hvaða
undirbúningur var nauðsynlegur?
Í upphafi unnum við kauplaust, kvöld og helgar, í langan tíma við vöruþróun.
Þegar varan var tilbúin og við höfðum selt fyrstu skólunum þá sögðum við
upp í gömlu vinnunni.
Men & Mice Suite verkefnið höfum við hins vegar fjármagnað með sölu á
hlutafé.
Okkar upprunalegi fjárfestir var „engla“ fjárfestir frá Finnlandi sem við hittum
á CeBIT sýningunni í Þýskalandi. Þegar leitað var að fjárfestum þá gengum
við á milli manna og kynntum viðskiptaáætlun okkar og framtíðarsýn. Það
sem sannfærði fjárfesta var fyrst og fremst þekking okkar af markaðnum,
sem kom til af því að við vorum alltaf að heimsækja viðskiptavini, ásamt því
hversu ákveðnir við vorum í að verða leiðandi á þessum markaði.
Íslenskir fjárfestar komu síðar að Mönnum og músum, fjárfestar eins og
Brú og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.
Sp: Leið langur tími frá því að fyrirtækið var stofnað og þar til byrjað var að
móta það formlegar fyrir starfsemina?
Menn og mýs var 3-5 manna fyrirtæki þar til árið 2000. Við reyndum að
stækka fyrirtækið í viðráðanlegum skrefum, bæði með tilliti til starfsfólks
og viðskiptaferla. Það að hafa atvinnufjárfesta um borð krafðist meiri
formlegheita í starfseminni.
Þroskastigin
Sp: Hvernig hefur fyrirtækið þroskast og á hvaða þroskastigi mynduð þið
staðsetja það í dag?
Það mætti segja að tilhugalífið hafði náð yfir fyrstu 10 árin. Þetta var tíminn
þar sem grunnurinn var lagður, safnað reynslu og ákafur lærdómur fór
fram. Þá kom bernskan. Á þessu stigi fannst okkur við vera það þroskuð
að við gætum orðið eitt af leiðandi fyrirtækjunum í heiminum á okkar sviði.
Jón Georg hætti öllum öðrum skuldbindingum og varði 100% af tíma sínum
í að heimsækja viðskiptavini og að knýja fram sölu. Pétur setti líka áherslu á
söluna með því sjónarhorni að ná betri skilningi á markaðnum. Þetta þýddi
að fyrirtækið færði sig hratt yfir í vaxtarstigið með arðsemi, tilkomumiklum
vexti og samningum við stóra viðskiptavini.
Um mitt árið 2006 var fyrirtækið vel statt fjárhagslega og var að vaxa hratt.
Það vaknaði sú hugmynd að skrifa
nafnamiðlara fyrir Mac OS. Við áætluðum
að það tæki þrjá mánuði og átján mánuðum
síðar var forritið tilbúið
Við höfðum enga reynslu að byggja á. Það
voru fáir í útflutningi hugbúnaðar á þeim
tíma. Við létum bara vaða með bjartsýni og
trú að leiðarljósi