Tölvumál - 01.11.2009, Blaðsíða 32
3 2 | T Ö L V U M Á L
Inngangur
Alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar gera kröfu til þess að upplýsinga endur-
skoðun (IT-audit) sé hluti af endurskoðunarvinnu hjá þeim fyrirtækjum sem
á annað borð þurfa á þjónustu endurskoðanda að halda. Hér á Íslandi eru
tilteknar lögformlegar kröfur sem ákvarða nauðsyn áritaðra ársreikninga en
í mörgum tilfellum er endurskoðunin að kröfu 3ja aðila eins og banka eða
fjármálastofnana jafnvel þó hún sé ekki bein lagaleg skylda.
Hins vegar er það ljós að í þeim tilvikum þar sem endurskoðunar er krafist
þá er það í flestum tilvikum jafnframt hluti af þeirri vinnu að framkvæma
upplýsingaendurskoðun sem almennt er nefnd tölvuendurskoðun. Það eru
nokkrar ástæður fyrir tilvist þessara staðla að því er varðar tölvuendurskoðun,
en segja má að þær séu tvíþættar. Annars vegar hefur flækjustig og magn
upplýsinga í fjárhagskerfum nútímans aukist svo mjög að væri hefðbundnum
aðferðum endurskoðunar beitt yrði það mjög kostnaðarsamt og tímafrekt.
Hins vegar er það staðreynd að í upplýsingakerfum og þá sérstaklega
fjárhagskerfum er að finna mjög marga eftirlitsþætti sem endurskoðendur
geta, ef vel tekst til, reitt sig á við mat á endurskoðunaráhættu.
Séu þeir þættir til staðar í upplýsingakerfum fyrirtækja sem endurskoðendur
geta reitt sig á er bæði hægt að framkvæma endurskoðun á ódýrari hátt
og einnig skapa meiri vissu um áreiðanleika þeirra fjárhagsupplýsinga
sem áritun er gefin fyrir. Framkvæmd tölvuendurskoðunar er samkvæmt
tilteknum verkferlum sem miða að því að draga fram þau atriði sem
minnst er á hér að ofan. Þau atriði sem gagnast helst við framkvæmd
endurskoðunar er einkum að finna í eftirlitsþáttum í fjárhagskerfunum
sjálfum en til þess að þau atriði hafi gildi þarf að liggja fyrir að ákveðnir
grundvallarþættir í stjórnun, umsýslu og framkvæmd kerfisstjórnunar séu
í lagi og til staðar.
Þættirnir eru: Almennur rekstur tölvukerfa, breytinga- og verkefnastjórnun
og svo aðgangur að kerfum og gögnum. Því miður hefur reynslan kennt
okkur að hérlendis eru þessir þættir oftar en ekki unnir með svo óformlegum
hætti að mjög erfitt er að byggja á eftirlitsþáttum í fjárhagskerfum þar sem
grunnforsendur skortir til þess. Sem dæmi má nefna að aðgangsstýringar
í fjárhagskerfum eiga að styðja við þá grunnmeginreglu að sami aðili sjái
ekki um bókun, samþykkt og greiðslu reikninga. Sé hins vegar aðgangur
að fjárhagskerfum öllum opinn er engin leið að sannreyna þá reglu hvað þá
heldur að leggja traust sitt á þá þætti.
Oftast er þó um tiltölulega einfaldar aðgerðir að ræða eigi úr þessum
grunnþáttum að bæta. Það er í stuttu máli að setja sér skriflegar
verklagsreglur og fylgja þeim svo með sannreynanlegum hætti. Hér að
neðan er tekið saman fyrir þá aðila, sem bara ábyrgð á upplýsingakerfum,
haldbær gátlisti til að tryggja áreiðanleika í rekstri upplýsingakerfa með
tilliti til þeirra áhersluþátta sem koma fram í tölvuendurskoðun. Sé vilji til
þess geta kerfisstjórar eða aðrir þess til bærir aðilar notað þetta yfirlit til að
standa klárir á sínu sé tölvuendurskoðun þáttur í endurskoðun fyrirtækis
þess er þeir starfa hjá.
Stjórnkerfi og ábyrgð
Ábyrgð og völd kerfisstjóra: Starfslýsing kerfisstjóra getur verið af mörgum
toga. Starfslýsing viðkomandi getur verið allt frá „Sjá um tölvumálin“ í að
vera svo nákvæm að segja m.a „Kerfisstjóri skal taka afrit af öllum gögnum
fyrirtækisins kl. 2 hvern föstudag áður en hann fer í kaffi“. Það sem skiptir
máli í þessu samhengi er að verkefni og ábyrgð séu ljós. Þegar eitthvað fer
ekki eins og ætlast er til og það tengist upplýsingatæknimálum þá virðist
vera sem kerfisstjóri beri alltaf ábyrgð á öllu með örgjörva án þess að það
sé nauðsynlega tiltekið í starfslýsingu hans.
Hlutverk yfirstjórnar: Það ber stundum á þeim misskilning að
upplýsingatæknikerfi séu tilgangur í sjálfu sér. Þetta kemur stundum
berlega í ljós þegar taka á í notkun nýjar útgáfur af viðskiptahugbúnaði.
Í seinni tíð er slíkur hugbúnaður með veflausnum sem geta opnað fyrir
Guðjón Viðar Valdimarsson, M.Sc. og
faggiltur innri endurskoðandi CIA CISA
Tölvuendurskoðun er orðin fastur hluti af árlegri
endurskoðun hjá flestum fyrirtækjum
fyrir kerfisstjóra
Tölvuendurskoðun