Tölvumál - 01.11.2009, Qupperneq 39
T Ö L V U M Á L | 3 9
eru mjög í takt við það sem þekkist úr Google Maps. Með einum hnapp
má skipta í loftmynd af svæðinu þar sem viðkomandi er staddur og gengur
þetta skrefinu lengra en hið eiginlega Google Maps á Netinu þar sem
götukort af Reykjavík er t.d. enn ekki til.
Erlendis væri á ýmsum stöðum líka hægt að skipta í svokallað Street View
og sjá götuljósmynd á skjá símans þar sem viðkomandi er staddur og þá
„líta í kringum sig“ til vinstri og hægri og fara fram og tilbaka. Hægt væri að
nota götukort með leiðsögn milli staða og með því að skipta í myndir og sjá
umhverfið jafnóðum. Má nærri geta hversu mikið þessi tækni einfaldar að
rata á framandi slóðum.
Nokia er á leiðinni með kortagrunn fyrir Ísland. Nokia Maps eins og
þjónustan kallast mun hafa það framyfir Google Maps á Íslandi að bjóða
upp á akstursleiðsögn. Sömuleiðis mun tæknin líka innifela göngustíga.
Hvar ertu eiginlega?
Enn einn eiginleiki Google Maps í farsímum er að staðsetja vini á korti.
Upplýsingarnar eru í rauntíma og ná um alla veröld en nákvæmnin ræðst af
því hvort viðkomandi er með GPS síma eða ekki en frávik er sýnt ef síminn
er án GPS. Notendur geta takmarkað hver sér hvern þar sem vinir þurfa að
samþykkja sín á milli hvort þeir séu sýnilegir.
Víðtækari þjónusta með þessa staðsetningartækni er að koma fram eins
og að sjá hvar umferðarálag er mikið og farsíminn getur sýnt það á korti
og leiðbeint notandanum framhjá hnútnum. Með GPS væddum símum
og kortum getur síminn einnig hnitsett ljósmyndir sem teknar eru með
innbyggðum myndavélum.
Sports Tracker
Nokia hefur um skeið verið með í beta útgáfu athyglisvert forrit og
vefþjónustu sem kallast Sports Tracker. Hún hefur þann tilgang að fylgjast
með árangri þess sem er í útivist svo sem að ganga eða hlaupa og geta
sent þessar upplýsingar síðan á vefinn til að deila með öðrum. Þannig geta
umræður farið fram og hægt að benda á nýjar og gamlar göngu-, hlaupa-
eða hjólaleiðir ásamt tímasetningum og hvernig landslagið er á leiðinni.
Forritið getur skráð þá leið sem er farin, hæð yfir sjó, hvar farið er hraðast,
hver hraðinn er og hvar farið er hæst yfir sjó. Ef verið er að hlusta á tónlist
í leiðinni er skráð hvaða lög það voru og ef ljósmyndir eru teknar á símann
eru hnitin skráð og myndatakan staðsett með nákvæmni.
Kortin sem fara á vefinn eru merkt með upplýsingum um lög og myndir
og tákn sýna hvar nýtt lag byrjaði, og hvert það var, hvar ljósmyndir voru
teknar og skoða má myndina með því að smella á íkon hennar. Síminn gæti
einnig mögulega skráð hjartslátt notandans og á línuriti má sjá samspil
ýmissa þátta i útivistinni. Vefur Sports Tracker leyfir að upplýsingar séu
sendar annað, eins og til dæmis á Fésbókina og einnig er hægt að senda
útkomuna úr æfingalotunni frá símanum inn á Google Earth og skoða þar.
Farsími notandans með Sports Tracker þarf stuðning frá GPS en hægt
er að fá sjálfstæða GPS græju sem tengist við farsímann með blátönn og
þannig er nákvæmri staðsetningu komið til skila inn í símann. Af vef Nokia
að dæma getur Sports Tracker gengið í nokkuð á áttunda tug mismunandi
Nokia síma. Þjónustan fékk sérstök verðlaun fyrr á árinu en tvær og hálf
milljón notenda munu hafa sótt hugbúnaðinn og heildarvegalengd þeirra
sem hafa þjálfað með aðstoð Sports Tracker mun jafngilda 31 ferð til
tunglsins.
Tilgangur SportsTracker að fylgjast
með árangri þess sem er í útivist svo
sem að ganga eða hlaupa og geta sent
þessar upplýsingar síðan á vefinn til að
deila með öðrum