Tölvumál - 01.11.2009, Síða 40
4 0 | T Ö L V U M Á L
Íslenski leikjaiðnaðurinn
Flestir þekkja fyrirtæki eins og CCP sem framleiðir fjölspilunarleikinn EVE
Online. CCP er stærst þeirra fyrirtækja sem framleiða leiki, en alls ekki það
eina. Fyrirtækin í samtökum íslensks leikjaiðnaðar hafa 575 starfsmenn,
þar af 311 á Íslandi.
Hjá CCP starfa tæplega 400 manns frá 20 löndum í þremur heimsálfum.
Velta fyrirtækisins er rúmlega 7 milljarðar á ári. Notendur EVE Online eru
fleiri en 300.000 og má búast við að fljótlega verði þeir fleiri en allir íbúar
á Íslandi.
Betware er minna þekkt fyrirtæki sem framleiðir leiki. Fyrirtækið sérhæfir
sig í íþrótta- og talnaleikjum fyrir ríkisrekin lottó- og getraunafyrirtæki.
Hjá Betware starfa hátt í 100 manns í fimm löndum, þar af vel yfir 50 á
Íslandi. Fyrir utan almenna happdrættisleiki eins og Lottó og Lengjuna, þá
framleiðir fyrirtækið hátt í 200 leiki; skafmiðaleiki, Bingó, fjölspilunarleiki
eins og t.d. Lúdó, Yatzy auk leikja eins og rúllettu og 21. Markaðssvæði
Betware er aðallega erlendis þó ræturnar megi rekja til samstarfs við
Íslenskar getraunir. Velta fyrirtækisins er að nálgast milljarð á ári.
Gogogic er eitt af spútnik fyrirtækjum landsins. Fyrirtækið hefur náð athygli
fjölmiðla og nýverið fjárfesti Nýsköpunarsjóður í fyrirtækinu. Gogogic
sérhæfir sig í að hanna leiki fyrir vefinn og iPhone, en nýjasta afurð þeirra
er Symbol 6. Fyrirtækið hefur einnig gert leiki fyrir Fésbókina. Gogogic fékk
styrk til framleiðslu á fjölspilunarleiknum Vikings of Thule sem kemur á
markað á árinu 2009.
Hjá On The Rocks starfa 43 starfsmenn út um allan heim en 10 á Íslandi.
Fyrirtækið sér um fjármögnun, hugmyndavinnu, grafískar útfærslur og
hönnun leikja. Markmiðið er að gefa út 3-4 leiki á ári. Áherslan er á iPhone
en sumum leikjum er dreift á annan máta. Meðal leikja má nefna iPhone
leikinn Tiltafun sem nýtir sér veltitækni símans. Annar leikur er Thor sem
byggður er á þrívíddarkvikmynd frá CAOZ. Leikurinn Legion of Amor er
hlutverkaleikur þar sem spilari stjórnar brynvörðum hermanni sem berst
Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í
Reykjavík og hugbúnaðararkítekt hjá Betware
Leikjaiðnaðurinn
er alvöru iðnaður
Í samtökum íslensks leikjaiðnaðar eru
fyrirtæki með samtals 575 starfsmenn, þar
af 311 á Íslandi
Flestir sem lögðu leið sína á Balthazar bar í miðborg Reykjavíkur miðvikudagskvöldið 6. maí 2009 voru að
koma til að horfa á undanúrslitaleik í meistaradeild Evrópu. Nokkrir einstaklingar lögðu þó leið sína framhjá
áhorfendum og upp á efri hæðina. Þetta fólk var að var að koma til að gera allt annað en að fylgjast með
fótboltaleik. Það var komið til að tala um aðra tegund af leikjum. Það sem sameinaði þennan fámenna hóp
var áhugi þeirra á leikjum og hönnun þeirra. Þetta var fyrsti fundurinn í nýstofnuðum samtökunum sem
heita Icelandic Gaming Industry, IGI. Leikjaiðnaðurinn er að verða alvöru iðnaður á Íslandi.