Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2009, Síða 44

Tölvumál - 01.11.2009, Síða 44
4 4 | T Ö L V U M Á L Í þeim tæknivædda heimi sem við lifum og hrærumst í er oft leit að skemmtilegu „dóti“ til að stytta sér stundir eða gera dagleg störf þægilegri og skemmtilegri. Í þessum stutta pistli er skimað yfir tvö slík fyrirbæri. Meccano Spykee „The WiFi Spy Robot“ Margir minnast eflaust Meccano sem var eins og Lego en bara úr járni og bauð upp á búa til allt sem hugurinn gat hugsað úr mislöngum og mislitum járnstöngum, öxlum, dekkjum, trissum og fleira. Þessi leikföng voru vinsæl á sínum tíma en nú hafa hönnuðir Meccano samtvinnað sín leikföng tölvum og tölvusamskiptum í ljósi breyttra tækniforsenda í daglegu lífi okkar. Niðurstaðan er Spykee. Hver hefur ekki gaman af því að eiga vélmenni sem: • Hægt er að stjórna þráðlaust á heimilisnetinu eða yfir Internetið • Getur talað í síma • Er með myndavél sem getur virkað sem vefmyndavél • Er með hreyfiskynjara og getur sent þér myndir eða tölvupóst þegar eitthvað hreyfist heima hjá þér ef þú ert ekki á staðnum. • Er með vöggu fyrir Ipod tónhlöðuna þína • Getur gefið frá sér bæði hljóð og hin ýmsu ljósfyrirbrigði Og til að kóróna þetta allt saman þá fer Spykee sjálfur í hleðslukvína sína og hleður sig þegar þörf er. Þegar fullri hleðslu er náð snýr hann aftur til þess verkefnis sem hann var í áður en hleðsla hófst. Meccano bendir á ýmsar leiðir til að nota Spykee eins og t.d. að hafa fyrir framan ísskápinn og nota hreyfiskynjarann til að taka mynd af þeim sem þar læðist inn til að ná sér í bita, njósna um nánustu ættingja á heimilinu eða sem færanlega vefmyndavél fyrir Skype samskipti. Þó að framleiðendur segi að þessi búnaður sé fyrir 8 ára og eldri þá ná vinsældir Spykee upp eftir öllum aldri. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Mekkano um Spykee http://www.spykeeworld.com/spykee/UK/ index.html ObjectDock+, Margir Apple notendur vinna á Windows tölvum og sakna þá oft ýmissra þæginda sem til staðar eru á Apple tölvum. ObjectDock er ein af þeim viðbótum sem setja má í Windows tölvur til að ná fram umhverfi sem minnir á MacOS stýrikerfið. Með þessari viðbót geturðu skipulagt mun betur vinnuumhverfið og stytt leiðir að þeim kerfum, skjölum og upplýsingum sem þú ert mest að nota. Margt má segja um viðbætur við Windows sem hafa komið fram í gegnum tímann en veikasti þáttur í þeim hefur alltaf verið að þær taka of mikið minni og örgjörvakraft. En með ObjectDock virðist hafa tekist að finna leið til að nýta sér hið myndræna vinnslukerfi Windows án þess að fórna afköstum kerfisins eða tölvunnar sem kerfið keyrir á. Það tekur smá tíma að stilla ObjectDock ef þú vilt breyta verulega frá staðal uppsetningunni en stillingavalkostir eru mjög margir, bæði í virkni og ásýnd. Það eru tvær útgáfur til, önnur er ókeypis en hin kostar um 20 dollara. Helsti munur liggur í að sú síðari gefur kost á mun betri og fjölbreyttari stillingum. Fyrir þá sem vilja prófa eða kaupa þá er meira að finna á http:// www.stardock.com/products/objectdock/ Dótakassinn Ágúst Valgeirsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs 365 miðla Skemmtilegt dót til að stytta sér stundir eða gera dagleg störf þægilegri og skemmtilegri Spykee er Meccano í tölvu og á neti. ObjectDock líkir eftir MacOS umhverfi Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður tveggja ára (120 ECTS eininga) framhaldsnám í eftirfarandi greinum: MSc-gráða í tölvunarfræði MSc-gráða í hugbúnaðarverkfræði MSc-gráða í máltækni Boðið er upp á tvær leiðir í meistaranámi; annars vegar er hefðbundið meistaranám þar sem nemendur taka námskeið í þrjár annir og ljúka svo meistaraverkefni. Hins vegar er rannsóknarmiðað meistaranám þar sem nemendur taka námskeið í eitt ár og vinna svo í heilt ár að rannsóknarverkefni sem lýkur með meistararitgerð. Námið veitir nemendum verulegt forskot í atvinnulí og góðan undirbúning fyrir doktorsnám. Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík er stærsta og ö ugasta tölvunarfræðideild landsins. Við deildina starfa sex rannsóknarsetur sem stunda rannsóknir á alþjóðlegum vettvangi. Nemendur við tölvunarfræðideild HR vinna að raunhæfum verkefnum sem þjálfa fagleg vinnubrögð, auka þekkingu og skapa sterk tengsl við atvinnulíf og rannsóknarsamfélag. Eftirspurn eftir tölvunarfræðingum og hugbúnaðarverkfræðingum eykst stöðugt og mun aukast enn meira á næstu árum. Ýmsar leiðir eru fyrir meistaranema til að a a sér styrkja eða tekna meðan á námi stendur. Háskólinn í Reykjavík býður upp á nýnemastyrki fyrir afburðanemendur og fá þeir skólagjöld niðurfelld á fyrstu önn sinni í námi. Aðrar leiðir eru m.a. dæmatímakennsla og rannsóknarstyrkir. Nálgast má upplýsingar um námið á vef tölvunarfræðideildar HR, http://hr.is/td MEISTARANÁM VIÐ TÖLVUNARFRÆÐIDEILD HR UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 30. NÓVEMBER

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.