Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2009, Síða 51

Tölvumál - 01.11.2009, Síða 51
T Ö L V U M Á L | 5 1 28. janúar 2009 var stofnfundur Faghóps um rafræna opinbera þjónustu og var mikill áhugi fyrir þessum atburði og mættu u.þ.b. 62. Í stjórn hópsins voru kjörin: Halla Björg Baldursdóttir, formaður Eggert Ólafsson, meðstjórnandi Guðfinna B. Kristjánsdóttir, meðstjórnandi Bragi L. Hauksson, meðstjórnandi Örn S. Kaldalóns, meðstjórnandi 5. febrúar 2009 Stjórnun verkefna á leið heim var heitið á örnámskeiði sem var haldið í salnum á Engjateignum og fengum við þrjá reynslubolta til að kynna fyrir okkur aðferðir við verkefnastjórnun og listina að velja réttar aðferðir fyrir ólík verkefni. 12. febrúar 2009 Aðalfundur Skýrslutæknifélagsins var haldinn þann 12. febrúar sl. á Grand hótel. Ný stjórn var kosin og skipa hana: Magnús Hafliðason, Sigrún Gunnarsdóttir, Hjörtur Grétarsson, Ragnheiður Magnúsdóttir, Jón Heiðar Þorsteinsson, Ásrún Matthíasdóttir og Bjarni Sigurðsson. Úr stjórn gengu Jóhann Kristjánsson og Svana Helen Björnsdóttir. 19. febrúar 2009 Opinn hugbúnaður á leið heim úr vinnu var örnámskeið um frjálsan og opinn hugbúnað, sem haldið var við góða aðsókn. Mikið framboð er af slíkum hugbúnaði á netinu, með mismunandi áherslum og virkni. Þetta gríðarlega framboð eykur flækjustigið við val á frjálsum og opnum hugbúnaði. Örnámskeiðið var hnitmiðuð kynning fyrir þá sem vilja spara sér tíma og bæta við þekkingu sína um frjálsan og opinn hugbúnað. 13. mars 2009 Hvernig má ná auknum árangri í rafrænni stjórnsýslu? Hvað má læra af öðrum OECD ríkjum? var fyrirsögn morgunverðarfundar sem haldinn var á Grand Hótel í samvinnu við Félag forstöðumanna ríkisstofnana, forsætisráðuneyti, Stofnun stjórnsýslufræða v. Háskóla Íslands. Yih-Jeou Wang frá OECD var aðalfyrirlesari og ræddi m.a. um mælikvarða OECD á gæði í rafrænni stjórnsýslu. Dr. Haukur Arnþórsson kynnti meginniðurstöður sinnar rannsóknar og velti fyrir sér hvaða leiðir gætu skilað betri árangri í framtíðinni. Guðbjörg Sigurðardóttir fjallaði um úttektir sem gerðar hafa verið á Íslandi um rafræna stjórnsýslu, hvaða lærdóm opinberir aðilar hafa dregið af þeim og hvernig verklagi hefur verið breytt í kjölfar þeirra til að bæta árangur í rafrænni stjórnsýslu. 19. mars 2009 Heimanet á leið heim úr vinnu! Fjarskiptahópur Ský stóð fyrir stuttu örnámskeiði um heimanet. Hugtakið heimanet felur í sér tæknileg verkefni á mörgum ólíkum sviðum, þ.e. fjarskiptatækni, stjórn- og stýritækni, mælitækni, tölvu- og hugbúnaðartækni, lagnatækni og fl. Markaður fyrir lausnir á sviði heimaneta er vaxandi og mikil þörf er fyrir spennandi og hugvitsamlegar lausnir. 20. mars 2009 Rafrænar kosningar - Verkfæri fyrir beint lýðræði var nafn á hádegisverðarfundi um rafrænar kosningar og beint lýðræði, sem sífellt fleiri stjórnmálamenn og aðrir áhugamenn um pólitík gera að sínu máli. Á fundinum voru skoðaðir möguleikar á rafrænum kosningum og var leitast við að fá svör við ýmsum spurningum. 2. apríl 2009 Netríkið Ísland: Sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað var fyrirsögnin á hádegisverðarfundi sem haldinn var á Grand hótel í samvinnu við forsætisráðuneytið þar sem kynnt var nýtt fræðsluefni á UT- vefnum. Annars vegar handbók um opinbera vefi og hins vegar fræðsluefni um stafrænt frelsi. Auk kynningar á fræðsluefni voru sagðar nokkrar reynslusögur af uppbyggingu opinberra vefja og notkun frjáls og opins hugbúnaðar hjá stofnunum. Fundurinn var liður í því að efla fræðslu til þeirra sem fást við upplýsingatækni hjá opinberum aðilum, ríkisstofnunum og sveitarfélögum.

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.