Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 5
Ástandið er sérstaklega slæmt utan Reykjavíkur. Til dæmis hefur gengið erfiðlega
fyrir þá sem útskrifuðust frá Háskólanum á Akureyri í júní 2011 að fá fasta vinnu.
Segja má að nú örli á því að atvinnuleysi sé að koma upp meðal hjúkrunarfræðinga.
Skráðir atvinnulausir eru að vísu fáir en þetta er samt áhyggjuefni.
Þó er þetta líklega ástand sem mun standa stutt. Þegar atvinnulífið tekur við sér
aftur og verðmætasköpun fer af stað munu Íslendingar ekki láta sér nægja skerta
heilbrigðisþjónustu. Eftirspurn eftir hjúkrunarfræðingum mun því aukast aftur. Þá
er hættan að framboðið verði allt of lítið. Sumir munu hafa flust til útlanda og aðrir
farið í önnur störf. Þá er vitað að óvenjustór hópur hjúkrunarfræðinga mun fara á
eftirlaun næstu fimm til tíu árin.
Við þessum framtíðarskorti þarf að spyrna. Spyrja má hvað heilbrigðisyfirvöld séu
að gera í málinu. Er til hjá Alþingi og framkvæmdarvaldinu stefna og framtíðarsýn
sem getur hjálpað okkur að bregðast við því ástandi sem mun blasa við innan
fárra ára? Eru menn almennt upplýstir um vandann? Eru stjórnvöld beinlínis að
búa til framtíðarvanda með því að minnka atvinnumöguleika háskólamenntaðra
heilbrigðisstarfsmanna? Hvað gera stofnanir og félög, sem eiga hlut að máli, til
þess að finna lausnir?
Það er aldrei auðvelt að leysa framtíðarvanda. Sumir trúa því ekki að slík lausn
sé til. Aðrir hafa ef til vill takmarkaðan hag af því að hjálpa til. Það má til dæmis
spyrja sig hvort vit sé í því fyrir háskólana að útskrifa hjúkrunarfræðinga sem fá
ekki vinnu fyrr en eftir nokkur ár. Samt er nauðsynlegt að hugsa til framtíðar. Það
er heldur ekki sjálfgefið að stéttarfélag eins og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
hafi hag af því að stuðla að jafnvægi í framboði og eftirspurn. Hagfræðin segir
að laun ættu að hækka þegar skortur er á starfsfólki en hagfræðikenningar hafa
hingað til lítið verkað í heilbrigðiskerfinu. Þá hafa stéttarfélög hjúkrunarfræðinga
allt síðan í árdaga tekið ábyrgð á framboði á hjúkrunarfræðingum og reynt eftir
megni að hjálpa til við að sinna eftirspurninni.
Spurningarnar um atvinnuhorfur hjúkrunarfræðinga eru margar en svörin fá.
En fyrir núverandi og verðandi hjúkrunarfræðinga eru svörin mikilvæg. Tímarit
hjúkrunarfræðinga mun á þessu ári fylgjast með hvernig málin þróast og leita
svara við þessum spurningum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Christer Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi:
Sunna K. Símonardóttir
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu og fræðigreina
er að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Árún K. Sigurðardóttir
Brynja Örlygsdóttir
Dóróthea Bergs
Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir
Kolbrún Albertsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Þorsteinn Jónsson
Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni:
Herdís Sveinsdóttir
Fréttaefni:
Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson
Ljósmyndir:
Christer Magnusson, Dominique Hommel,
Rudolf Adolfsson o.fl.
Próförk og yfirlestur:
Ragnar Hauksson
Auglýsingar:
Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun:
Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4000 eintök
Pökkun og dreifing: Póstdreifing
NÓG Í DAG EN SKORTUR Á MORGUN
Upp hefur komið sérkennileg staða í
atvinnumálum hjúkrunarfræðinga. Eins og
kemur fram í viðtali í þessu tölublaði er ekki
lengur sjálfsagt að fá vinnu eftir útskrift.
Þetta er eitthvað sem hjúkrunarfræðingar
þekkja ekki nema á allra síðustu árum.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall
Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga
Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
- Lifið heil
www.lyfja.is
Við hjúkrum þér
í Lyfju Lágmúla
Hjúkrunarþjónustan í Lyfju Lágmúla er opin frá kl. 8–17 virka daga.
Það getur komið sér vel að hafa aðgang að fagfólki utan sjúkrastofnana. Þannig sparar þú biðtíma og fyrirhöfn.
Hjúkrunarfræðingur og sjúkraliðar í Lyfju Lágmúla veita ýmsa sérhæfða þjónustu:
• Einfaldar sáraskiptingar
• Saumataka
• Sprautun (kl. 10-12 virka daga)
• Ráðgjöf við val á stoðvörum
• Ráðgjöf við val á næringarvörum vegna vannæringar eða sjúkdóma
• Ráðgjöf við val og notkun á sykursýkisvörum
• Aðstoð við stómaþega
Reglulegt eftirlit er mikilvægt, ekki síst fyrir heilsuna. Lyfja er þér ávallt innan handar þegar kemur að því að mæla:
Blóðþrýsting, blóðfitu, blóðsykur, blóðrauða (hemóglóbín), súrefnismettun í blóði, beinþéttni, öndun (útöndun)
og kolmónoxíð í útöndun (fyrir þá sem vilja hætta að reykja).
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
5
31
60
1
.2
01
1