Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 36
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201232 Cecilie B.H. Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is KJARAKÖNNUN 2011 Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur nú í þriðja sinn gert kjarakönnun meðal félagsmanna sinna. Í ljós komu áhuga­ verðar upplýsingar um laun, starfshlutfall og menntun hjúkrunarfræðinga. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð fyrir kjarakönnun á meðal félagsmanna sinna í desember 2011. Stærð úrtaksins var 3.268 hjúkrunarfræðingar, heildarfjöldi svarenda var 544 eða 16,6%. Markmið könnunarinnar var að kanna launakjör hjúkrunar­ fræðinga. Könnunin var lokuð vefkönnun þar sem þátt­ Ríflega helmingur svarenda starfar nú í dagvinnu en 48% svarenda eru í vakta- vinnu. Starfsumhverfi hjúkrunar fræðinga hefur samkvæmt þessu tekið verulegum breytingum á undanförnum árum. 53,5% svarenda hafa lokið formlegu fram haldsnámi og þar af 33,6% í hjúkrun. Meðalstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga er samkvæmt könnuninni 84% og helst það óbreytt á milli ára. Þeir sem starfa einvörðungu í dagvinnu eru í hærra starfshlutfalli, eða 87%, heldur en þeir sem eru í vaktavinnu sem eru að meðaltali í 81,8% starfshlutfalli. Starfshlutfallið eykst með aukinni ábyrgð og er að meðaltali 95% hjá stjórnendum í hjúkrun. Þegar spurt var „á hversu mörgum vinnustöðum vinnur þú?“ svöruðu 83,7% að þeir störfuðu á einum vinnustað, 13,7% að þeir störfuðu á tveimur vinnustöðum, 1,9% að þeir störfuðu á þremur vinnustöðum. Þegar spurt var „hefur þú unnið erlendis á síðustu 12 mánuðum?“ þá svöruðu 7% spurningunni játandi en 93% svöruðu neitandi. Af þeim sem svöruðu játandi höfðu flestir, eða 83,3%, farið til Noregs til starfa. 39,9% svarenda telja sig ekki hafa fengið launahækkun á sl. 12 mánuðum og er það óneitanlega áhyggjuefni þar sem allir hjúkrunarfræðingar starfandi á okkar kjarasamningum áttu að fá 4,25% launahækkun 1. júlí 2011. 2,3% svarenda segja grunnlaun sín hafa lækkað. 17,1% hjúkrunarfræðinga eru í launaflokki 6 sem er algengasti launa- flokkurinn. Flestir hjúkrunar fræðingar eru í launaflokkum 5-8 eða 48,4%. Þegar spurt var um álagsflokk kom í ljós að 16,1% voru í álagsflokki 5 sem er jafnframt algengasti álags flokkurinn en stærsti hópurinn er í álagsflokkum 3-6 eða 55,7% svarenda. Meðalgrunnlaun hjúkrunarfræðinga eru samkvæmt könnuninni 422.785 kr. fyrir fullt starf. Meðalgrunnlaun almennra Kjör félagsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.