Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 10
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 20126 Katrín Blöndal, Hildur Einarsdóttir, Brynja Ingadóttir, Dóróthea Bergs, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Ingunn Steingrímsdóttir, Sigrún R. Steindórsdóttir og Elín J.G. Hafsteinsdóttir, katrinbl@landspitali.is LEGGINN ÚT verkefni um ígrundaða notkun þvagleggja Á Landspítala hefur hópur hjúkrunarfræðinga tekið höndum saman um að takmarka notkun þvagleggja og þannig koma í veg fyrir þvagfærasýkingar. Hópurinn hefur skoðað hvernig þvagleggir eru notaðir og staðið fyrir fræðsluátaki um rétta þvagleggsísetningu. Sýkingar af völdum þvagleggja eru umfangsmikið vandamál í heilbrigðis­ kerfinu og hafa margvíslegar afleiðingar fyrir sjúklinga og heilbrigðisstofnanir. Þvagfærasýkingar eru algengasta tegund spítalasýkinga eða 40% allra spítalasýkinga. Stærstur hluti þessara þvagfærasýkinga eða meira en 80% tengjast notkun þvagleggja. Slíkar sýkingar, sem að hluta til má koma í veg fyrir, setja sjúklinga í óþarfa hættu og ógna öryggi þeirra (sjá töflu 1). Umræðuhópur í vinnusmiðju um þvagleggi á ráðstefnunni Hjúkrun 2011. Tafla 1. Afleiðingar þvagfærasýkinga af völdum þvagleggja. • Legutími lengist • Kostnaður heilbrigðiskerfis og sjúklinga eykst • Aukin notkun sýklalyfja • Aukin vanlíðan sjúklinga vegna sjúkdóms einkenna • Sjúklingar með legg fara síður fram úr rúmi en það eykur hættu á þrýstingssárum, myndun blóðtappa og lungnabólgu. Rannsóknir hafa sýnt að 12­25% allra sjúklinga, sem leggjast inn á spítala, fá þvaglegg í legunni og að ekki er gild ástæða fyrir ísetningu 41­58% þeirra. Af þessum niðurstöðum má draga þá ályktun að þvagleggir séu oft settir að óþörfu. Geta má þess að mörg bandarísk sjúkratryggingafélög greiða ekki kostnað sem hlýst af þvagfærasýkingu sem tengja má ísetningu þvagleggs í sjúkrahúslegu. Álit þeirra er að hægt sé að koma í veg fyrir slíkar sýkingar með öllu. Hjúkrunarfræðingar geta lagt mikið af mörkum til að fækka þessum þvagfæra­ sýkingum. Þeir hafa töluvert um það að segja hvenær og hvort þvagleggir eru settir og fjarlægðir auk þess sem það kemur oft í þeirra hlut að setja upp þvagleggi hjá sjúklingum. Þá annast þeir ásamt sjúkraliðum sjúklinga með þvagleggi. Rannsóknir benda til þess að breytt vinnulag varðandi þvagleggi geti dregið stórlega úr sýkingum þeim tengdum. Því er mikilvægt að beina fræðslu um breytt verklag til hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í þeim tilgangi að hafa áhrif á notkun og umhirðu þvagleggja. Undanfarið ár hefur á Landspítala (LSH) verið unnið að verkefni sem lýtur að því að breyta viðhorfum og vinnulagi starfs­ fólks til þvagleggja og fækka þvag færa­ sýkingum af völdum þvagleggja. Fyrir­ mynd verkefnisins er sótt til IHI­stofnunar­ innar (Institute for Healthcare Improve­ ment) í Bandaríkjunum. Stofnunin vinnur á alþjóðlegum grundvelli að auknum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.