Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 31
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 27
„Lillurnar“ úr Fossvogi. Frá vinstri standa Anna Harðardóttir, Hrafnhildur
Eyþórsdóttir, Guðrún Petra Árnadóttir og Kristín Katla Swan.
gjörgæsludeilda í Danmörku nota dagbókarskrif sem hluta
meðferðar. Dag bækurnar eru hugsaðar fyrir sjúklinga sem eru
svæfðir lengur en í tvo sólar hringa á gjörgæsludeild og skulu
hjúkrunarfræðingar og annað starfs fólk, sem annast sjúklinginn,
sjá um að skrá í dagbókina ásamt fjölskyldu sjúklings. Bækurnar
skal skrifa á auðskilinn hátt og gæta þess að notkun fagorða sé
haldið í lágmarki. Mikilvægast er þó að fylgja dagbókarskrifunum
vel eftir og meta hvenær sé best að afhenda sjúklingum bækurnar
þar sem þær eru hugsaðar til að auðvelda sjúklingum að vinna
úr veikindum sínum.
Uppbygging dagbókanna felur í sér innlagnarástæðu og
ástand við komu, daglega viðburði á meðan sjúklingurinn
liggur á gjörgæslunni og ástand hans við útskrift. Einnig er
hægt að bæta við myndum af aðstæðum og sjúklingi sé
þess óskað. Auk þessa kom fram í fyrirlestrinum að sýnt hafi
verið fram á að dagbókarskrif geti dregið úr kvíða, þunglyndi,
minnisleysi, svefnvandamálum og áfallastreituröskun hjá
sjúklingum sem legið hafa á gjörgæslu. Þau geti einnig
auðveldað aðstandendum að vinna úr sorg sinni missi þeir
einhvern sér nákominn. Að lokum kom þó einnig fram að það
vantar fleiri rannsóknir sem sýna fram á gildi dagbókanna þar
sem lítið er vitað um neikvæð eða skaðleg áhrif slíkra skrifa á
sjúklinga.
Þar sem mikið var af áhugaverðum fyrirlestrum og dagskráin
þétt reyndist erfitt að flakka á milli sala. Því brugðum við á það
ráð að skipta okkur á salina fjóra og fara saman yfir helstu
atriði fyrirlestranna í lok dags. Hlé voru gerð með reglulegu
millibili þar sem boðið var upp á hressingu, hádegismat
og kynningar á mismunandi hjúkrunarvörum. Okkur þótti
ráðstefnan vönduð í alla staði og má þar nefna að fyrsta
kvöldið bauð borgarstjórinn ráðstefnugestum til glæsilegs
kvöldverðarhlaðborðs í Ráðhúsinu.
Að okkar mati er þátttaka á erlendum ráðstefnum ekki síður
mikilvæg fyrir unga hjúkrunarfræðinga með stuttan starfsaldur
en þá sem reynslumeiri eru. Ráðstefnan opnaði augu okkar fyrir
því hversu framarlega íslensk hjúkrun er á margan hátt miðað
við önnur Evrópulönd og hafði hvetjandi og endurnærandi áhrif
á okkur. Hins vegar voru önnur viðfangsefni, sem aðrir hafa
sinnt um árabil, ný og framandi fyrir okkur og kveiktu áhuga
okkar á að koma sumum þeirra hugsanlega á fót á íslenskum
gjörgæsludeildum, til dæmis dagbókarskrifum.
Við vorum gríðarlega ánægðar með ráðstefnuna í alla staði og
hvetjum alla hjúkrunarfræðinga til að íhuga þátttöku á erlendum
ráðstefnum eða námskeiðum. Sjálfar erum við fullar tilhlökkunar
fyrir næstu ráðstefnu þar sem við getum aukið þekkingu okkar,
eignast nýjar minningar og ræktað vinasambönd.
Anna Harðardóttir og Kristín Katla Swan eru hjúkrunarfræðingar
á gjör gæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Anna útskrifaðist frá
Háskóla Íslands árið 2006 og Kristín Katla útskrifaðist frá Háskólanum
á Akureyri árið 2009.
Textinn um dagbókarskrif á gjörgæslu er unninn upp úr fyrirlestri
Guðrúnar Petru Árnadóttur og Hrafnhildar Eyþórsdóttur sem haldinn
var á haustráðstefnu fagdeildar gjörgæslu hjúkrunarfræðinga í október
2011 og er birtur með þeirra leyfi. Guðrún Petra og Hrafnhildur eru
einnig hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
og voru með í för á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta