Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Síða 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Síða 16
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201212 Þorsteinn Jónsson, thorsj@hi.is HANDTÆKI Í HJÚKRUN Sagt er að jólagjöfin í fyrra hafi verið spjaldtölva. Slík tæki geta verið skemmtileg einkaeign en geta þau nýst í hjúkrunarstarfinu? Snjallsímar og spjaldtölvur eru vinsæl tæki núorðið. Vinsældum þeirra eru ekki tak mörk sett og sífellt fleiri hjúkrunar­ fræðingar nota tækin í klínísku starfi enda notagildi þeirra margþætt. Í þessari grein verður stiklað á stóru varðandi notagildi handtækja í hjúkrun (e. personal digital assistant, PDA). Fjallað verður um möguleika, kosti og ókosti þess að styðjast við handtæki í hjúkrun. Umfjöllunin er á engan hátt tæmandi enda um víðfemt efni að ræða. Stuðst verður við orðið „handtæki“ þegar verið er að vísa í notkun á snjallsímum, lófatölvum eða spjaldtölvum en það skortir íslenskt orð yfir enska hugtakið personal digital assistant. Sími eða tölva? Þegar fjallað er um snjallsíma er vísað í „lófatölvu með síma“ þar sem símtækið sem slíkt er nánast orðið aukaatriði. Snjallsímar eru almennt fyrirferðalitlir, passa vel í vasa en eru um leið öflugar tölvur með flestum þeim möguleikum sem venjulegar heimilistölvur búa yfir. Meginkostur snjallsíma er hve fyrirferðalitlir þeir eru og þannig er auðvelt að vinna með þá hvar sem er. Á sama hátt má segja að smæð snjallsíma sé ókostur því á litlu tæki er lítill skjár sem erfitt getur verið að lesa af. Lausn á þessu felst í spjaldtölvum sem sameina það besta úr snjallsímum og fullvöxnum heimilistölvum. Það sem aðgreinir spjaldtölvur einna helst frá hefðbundnum heimilistölvum er viðmótið. Stjórnun spjaldtölva fer fram með fingrum en ekki með mús og hnöppum líkt og á heimilistölvum. Þá eru spjaldtölvur með stórum og björtum skjá og mjög fljótlegt er að ræsa tækið líkt og snjallsíma. Fjölmargar tegundir eru til af snjallsímum og spjaldtölvum og má þar nefna iPhone, Nokia, Sony, iPad

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.