Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 24
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201220
Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is
GUÐRÚN MARTEINSSON, 19242011
Kveðja frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Guðrún Marteinsson var fædd 14. september
1924 og lést 29. nóvember 2011, 87 ára. Hún
var gerð að heiðursfélaga í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga 2003.
Guðrún Marteinsson, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri á Landakotsspítala, var sannur
leiðtogi og brautryðjandi. Hún var einnig ötull talsmaður hjúkrunar alla tíð.
Guðrún útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1952. Hún sótti framhaldsnám
í hjúkrun til Englands og Bandaríkjanna þar sem hún starfaði síðan í rúman
áratug. Auk hjúkrunarstarfa hér heima kenndi Guðrún við Hjúkrunarskóla
Íslands, Háskóla Íslands og við Nýja hjúkrunarskólann. Hún var ráðin
hjúkrunarforstjóri við Landakotsspítala vorið 1978 og starfaði þar til ársins 1990
að hún fór á eftirlaun.
Guðrún var sigld kona í þess orð fyllstu merkingu. Með henni kom ferskur blær
inn í hjúkrunina og hjúkrunarkennsluna. Hún innleiddi nýjungar í kennslu og kom
meðal annars á námsferðum til Ameríku sem á þeim tíma voru mikil nýjung.
Í námi sínu og störfum erlendis hafði Guðrún kynnst fjölda fræðimanna og
stjórnenda í hjúkrun sem síðar komu hingað til lands á hennar vegum. Íslenskir
hjúkrunarfræðingar og skjólstæðingar þeirra nutu þannig góðs af víðsýni
Guðrúnar og af þekkingu þessara erlendu fræðimanna.
Framtíðarsýn Guðrúnar, metnaður fyrir hönd hjúkrunar og einstakir hæfileikar
hennar til að laða að sér hæfileikaríkt samstarfsfólk komu glögglega í ljós í
störfum hennar sem hjúkrunarforstjóri Landakotsspítala. Guðrún var góður
stjórnandi og mikill leiðtogi í hjúkrun. Á Landakoti innleiddi hún það besta
og nýjasta í hjúkrun á hverjum tíma og fór oft ótroðnar slóðir. Guðrún var
óþreytandi við að hvetja og styðja hjúkrunarfræðingana sína til framgangs og
veitti þeim ótal tækifæri til að efla faglega þekkingu sína og færni í hjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar þökkuðu Guðrúnu fyrir brautryðjendastörf hennar í hjúkrun
með því að gera hana að heiðursfélaga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
vorið 2003.
Blessuð sé minning Guðrúnar Marteinsson hjúkrunarfræðings.
Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.