Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 25
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 21 Rudolf Adolfsson, radolfss@landspitali.is Ljósmyndahornið MYNDUPPBYGGING SKIPTIR SKÖPUM Á meðal hjúkrunarfræðinga leynast margir áhugaljósmyndarar. Einn þeirra er Rudolf Adolfsson, geðhjúkrunar fræðingur í áfallahjálparteymi Land spítalans. Nýlega eignaðist hann hreyfi myndavél og leikur sér mikið við að búa til myndskeið. Hann er þó ekki hættur að taka ljósmyndir eins og kemur fram hér fyrir neðan. Það er minnsta málið að smella af myndum á stafrænar myndavélar sem eru nánast í hvers manns eigu núorðið. En mynduppbygging skiptir sköpum í sambandi við hvort mynd er vel heppnuð eða ekki. Sem ljósmyndari hef ég alltaf lagt mikið upp úr því að bakgrunnurinn sé í jafnvægi við viðfangsefnið og á fyrri myndinni á það einnig við um forgrunninn. Hún er tekin í Landmannalaugum. Ég hef í gegnum árin talið mig bestan í að ljósmynda einstaklinga eða hópa. Aðalatriðið þar er að viðfangsefnið treysti ljósmyndaranum. Eins og sést í augum Sigrúnar Meng, vinkonu minnar, er traustið ekki fullkomlega til staðar – og einmitt það gefur myndinni sérstakt gildi að mínu mati. Myndavélin, sem ég nota, er Nikon D80 og uppáhaldslinsan er Sigma DC 18­200 mm. Fyrri myndin er tekin á ISO 200, 18 mm, f. 9 og hraðinn 1/320 en sú seinni er ISO 400, 200 mm, f. 5,6, og hraðinn 1/60 úr sekúndu.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.