Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 23
Á fundi stjórnar í desember ár
hvert skal tekin ákvörðun um
styrktar fjárhæð fyrir komandi ár.
Stjórn sjóðsins kemur að jafnaði saman
fjórum sinnum á ári, í febrúar, maí,
september og desember.
4. Réttur til aðildar að sjóðnum
Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir
þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa
hjá launagreiðendum sem gert hafa
kjarasamning við Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga um framlag í
starfsmenntunarsjóð Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, hér eftir nefndir
sjóðfélagar.
5. Skyldur vinnuveitenda
Launagreiðendur greiða iðgjald til sjóðsins
sem nemur 0,22% af heildarlaunum
starfsmanns, sbr. ákvæði kjarasamninga
um framlag í starfsmenntunarsjóð.
6. Réttur sjóðfélaga
a) Sérhver sjóðfélagi, sem hefur verið
a.m.k. eitt ár í sjóðnum, er styrkhæfur
samkvæmt nánari ákvæðum þessara
starfsreglna enda sæki hann um út af
styrkhæfu verkefni. Réttur til aðildar að
sjóðnum fellur brott þegar iðgjald hefur
ekki verið greitt í 6 mánuði. Sjóðfélagi
heldur þrátt fyrir það aðildarrétti í
fæðingarorlofi. Lífeyrisþegi heldur
aðildarrétti í 12 mánuði frá því að
viðkomandi hættir starfi.
b) Sjóðfélagi, sem er í launalausu leyfi,
getur verið styrkhæfur samkvæmt
nánari ákvæðum þessara starfsreglna
ef minna en 4 mánuði vantar upp á að
sjóðsaðild nái einu samfelldu ári vegna
launalauss leyfis.
c) Sjóðfélagar, sem orðið hafa atvinnu
lausir, geta sótt um og fengið styrk
úr sjóðnum samkvæmt eftirfarandi
reglum:
• Skilyrði. Umsækjandi hefur átt aðild
að sjóðnum einhvern tíma á síðustu
12 mánuðum og verið sjóðfélagi í
a.m.k. 6 mánuði, þ.e. verið í vinnu hjá
launagreiðanda með sjóðsaðild.
• Styrkhæfni. Sömu reglur gilda eins
og fyrir aðra sjóðfélaga. Að auki má
veita styrk til námskeiðs sem tengist
beinlínis atvinnuleysi sjóðfélaga eða
auðveldar honum að öðlast starf á ný.
d) Réttur sjóðfélaga miðast þó ávallt við
fjárhag sjóðsins hverju sinni. Ef staða
sjóðsins leyfir ekki að orðið sé við öllum
styrkhæfum umsóknum styrkhæfra
umsækjenda ber sjóðsstjórn að veita
þeim umsóknum forgang sem hafa
mest faglegt gildi fyrir starfshæfni
starfsmanns.
7. Styrkhæfni verkefna
a) Inntak verkefnis. Verkefni þarf að
jafnaði að varða annaðhvort starf
eða fagsvið sjóðfélaga til að vera
styrkhæft. Námskeið til þess að auka
almenna starfshæfni á sviði tölvutækni,
tungumála og samskipta eru styrkhæf
þó námið tengist ekki beinlínis starfi
eða háskólamenntun umsækjanda.
Sjóðstjórn metur vafatilvik.
b) Staðsetning verkefnis. Hægt er að
sækja um styrk vegna verkefna
innanlands sem utan, svo sem
námskeið, ráðstefnur, málþing og
faglega skipulagðar heimsóknir.
Dagskrá heimsóknanna verður að
fylgja með umsókninni því annars
getur nefndin ekki tekið afstöðu til
hennar. Sjóðstjórn metur vafatilvik.
c) Hvað er styrkt? Sjóðfélagar geta fengið
styrk vegna útlagðs:
• ferðakostnaðar (s.s. flugfargjalda eða
aksturskostnaðar)
• hótel og gistikostnaðar
• náms og ráðstefnugjaldakostnaðar
• símkostnaðar vegna fjarnáms.
Sjóðstjórn metur vafatilvik.
d) Verkefni fyrir umsókn er styrkhæft í allt
að 9 mánuði eftir að því lýkur.
e) Hvað er t.d. ekki styrkt? Sjóðfélagar
geta ekki fengið styrk vegna:
• uppihalds (fæðiskostnaðar) og ferða
innan borga
• launataps
• bókakostnaðar eða námsgagna
• tómstundanámskeiðs.
Ekki er hægt að nota styrkinn til að greiða
fyrir annað námskeið en það sem kemur
fram á umsókninni.
8. Hámarksstyrkfjárhæð
Hámarksstyrkfjárhæð er 45.000 kr.
á almanaksárinu. Ef hluti styrks hefur
verið tekinn út á árinu hefur það áhrif á
styrkfjárhæð.
Í maí 2012 verður í síðasta sinn úthlutað
20 styrkjum sem nema 100.000 kr.
Styrkirnir eru vegna náms sem uppfyllir
NÝR STARFSMAÐUR
Bjarni Ingvarsson hefur verið ráðinn
umsjónarmaður eigna orlofs sjóðs
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Þetta er nýtt starf og reyndist tölu
verður áhugi á því en 70 sóttu
um. Hlut verk umsjónarmanns er að
sjá um eftirlit og viðhald á eignum
sjóðsins. Hann tekur út nýja leigu
kosti áður en samið er um leigu og
skoðar reglulega orlofshús og íbúðir
í eigu félagsins. Þá sér hann um
viðhald, hefur samband við iðnaðar
menn o.fl.
Ekki er ætlast til að félagsmenn hafi
beint samband við Bjarna heldur
fara allar viðhaldsbeiðnir gegnum
skrifstofu félagsins. Þó mun hann
sinna ákveðinni neyðarþjónustu.
Símanúmer vegna þessa er að
finna á leigusamningunum sem
félagsmenn eru hvattir til að prenta
út þegar orlofshús eða íbúðir eru
pantaðar.
Bjarni Ingvarsson
ráðinn umsjónarmaður
eigna orlofssjóðs
Bjarni Ingvarsson.