Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Qupperneq 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Qupperneq 35
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 31 Það þarf ekki að segja ykkur hvað þið búið yfir dýrmætri reynslu og ekki heldur að margar hendur vinna létt verk. Ég, sem þessar línur rita, hef fylgst með nokkrum hjúkrunarfræðingum sem leggja fram sjálfboðavinnu sína hjá Rauða krossinum, Hjálparstarfi kirkjunnar og fleiri hjálparstofnunum. Ég hef séð hversu störf þessara einstaklinga gefa mikið af sér, bæði fyrir þann sem þiggur og þá sem gefa, hef séð hvað þess háttar starf er virkilega verðmætur þáttur í lífi margra einstaklinga. Þá kem ég mér beint að erindinu: Ég held að margar stofnanir og deildir sjúkrahúsa myndu fagna því mjög að fá liðstyrk við sérstakar og stundum afar erfiðar kringumstæður. Ég tek sem dæmi að oft þurfa aðstandendur fatlaðra og langveikra barna að dvelja vikum og mánuðum saman á sjúkrastofnunum með börnin sín og þá reynir óendanlega mikið á foreldra og nánustu aðstandendur þessara barna. Ef nú einhver „viðbótarmamma“, ­amma, ­afi eða ­pabbi, sem hefði hjúkrunarfræðimenntun, væri til í að leggja lóð sín á vogarskálina í þessum málum, gæti það létt mjög undir hjá mörgum fjölskyldum sem eru að sligast undan erfiði og þunga dagsins. Ágætu kollegar. Nú erum við, ef til vill, nokkuð margir hjúkrunarfræðingarnir sem eigum einhverjar lausar stundir og höfum því áhuga á að bæta við okkur örlitlu sjálfboðastarfi. Í von um að svo sé þá langar mig, með stuðningi Elsu Friðfinnsdóttur formanns, að stofna til smá­samverustundar eða ­fundar með ykkur sem kynnuð að hafa áhuga á einhverju líku þessu, nú þegar sól er að hækka á lofti. Við ykkur sem finnst eitthvert vit í þessu, þó ekki væri nema að spjalla um möguleika í þessa veru og án skuldbindinga: Meldið ykkur endilega á hjukrun@hjukrun.is eða bara hringið í Guðrúnu Andreu hjá félaginu okkar í síma 540 6400. Við sjáum hvað setur. Með baráttukveðju, Ingibjörg Pálmadóttir, Akranesi Nokkrum dögum seinna, um svipað leyti dags, baðaði sólin Esjuna og húsin í Laugarási gullnu ljósi. Sólin átti þá enn hálftíma eftir ofan sjóndeildarhrings þannig að skuggi lá að mestu leyti yfir borginni.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.