Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 35 Áróðursmynd frá breska hernum. Dauði Edithar Cavell var notaður til þess að hvetja menn til að skrá sig í herinn. Kirkjugluggi í Swardeston, heimabæ Edithar Cavell. það algjör bylting frá upphafi skólans 1907 þegar þeir voru þrír. Sama ár var ákveðið að byggja nýtt hús yfir skólann og átti þar að vera gistirými fyrir 50 hjúkrunarnema. Hins vegar kom enn helmingur nemanna frá útlöndum. Við hverja útskrift fjölgaði smám saman veraldlegum hjúkrunarfræðingum en margir Belgar voru ekki alveg tilbúnir til að hugsa sér hjúkrunarkonur sem voru ekki nunnur. Sumarið 1914 var Edith í sumarfríi heima á Bretlandi. Hér breytist ævisagan í æsis­ pennandi frásögn af atburðunum í Evrópu eftir morðið á Franz Ferdinand í Sarajevo. Inn á milli er sagt frá rólegu lífi Edithar og lesandann er farið að gruna að Edith muni lenda í vandræðum ef hún snýr aftur til Brussel. Við sjóndeildarhringinn eru að myndast stór ský sem eiga eftir að hafa skelfilegar afleiðingar fyrir Edith og milljónir manna. Enginn hefði orðið hissa ef Edith hefði ákveðið að vera um kyrrt í Bretlandi en henni datt það ekki í hug heldur flýtti sér að pakka saman föggum sínum. Hún sá fyrir sér að brátt yrði mikil þörf fyrir hjúkrun og hún átti hér möguleika á að gera það sem Florence Nightingale hafði gert í Krímstríðinu og aðrir hjúkrunarfræðingar í Búastríðinu 1905. Henni tókst að komast yfir Ermarsund með einu af síðustu skipunum og kom til Brussel daginn áður en stríðið skall á 4. ágúst. Diana Souhami rekur þróunina á fyrstu mánuðum stríðsins í smáatriðum, stundum einum of nákvæmlega miðað við að bókin er ævisaga hjúkrunarfræðings. Í leiðinni fær lesandinn alls konar upplýsingar, til dæmis að í fyrri heimsstyrjöldinni dóu milljón hestar og 250.000 múlasnar frá Bretlandi á vígvöllunum á meginlandinu. Markmið höfundar er væntanlega að sýna hversu mikið blóðbað þetta stríð var og búa okkur undir það sem koma skal í bókinni. Margar borgir í Belgíu voru eyðilagðar á fyrstu dögum stríðsins en Brussel var lýst opin borg og Þjóðverjar gátu þrammað inn í borgina mótstöðulaust. Til að byrja með komu fáir særðir til borgarinnar og furðurólegt var á sjúkrahúsinu þar sem hjúkrunarskóli Edithar var staðsettur. Þeir sem komu voru flestir Þjóðverjar. Sókn Þjóðverja inn í Belgíu gekk mjög hratt og breski herinn, sem hafði komið Belgum til aðstoðar, mátti sín lítils. Margir breskir hermenn, oft særðir, urðu viðskila við herdeildir sínar og höfðust við í skógarkofum og fjósum. Fjöldi Belga tók þá upp á sína arma og aðstoðaði þessi týndu börn, eins og þeir voru kallaðir. Menn mynduðu leynihópa sem smám saman tengdust. Edith Cavell dróst einnig inn í þessi samtök. Dag einn í nóvember 1914 börðu tveir breskir hermenn á dyr hjúkrunarskólans. Edith tók þá að sér og eftir það varð ekki aftur snúið. Hjúkrunarskólinn var orðinn að einu af skjólshúsunum á flóttaleiðinni til Hollands. Hjúkrunarkonan starfaði nú á laun. Þegar mest var voru um 80 breskir hermenn í umsjón Edithar og nýir streymdu að nánast daglega. En eftirgrennslan Þjóðverja efldist dag frá degi. Jafnvel þó að fáni Rauða krossins blakti fyrir utan sjúkrahúsið var það alkunna að nokkrar hjúkrunarkonurnar voru breskar og það vakti athygli Þjóðverja. Hjúkrunarkonurnar voru stöðvaðar úti á götu og leitað var að fötum og skilríkjum sem Þjóðverjar héldu að þær ætluðu hugsanlega að færa breskum hermönnum. Þegar leitað var á sjúkrahúsinu fóru allir hermennirnir út í garð eða í laus sjúkrarúm og Edith bjó til nöfn og sjúkrasögur til þess að blekkja Þjóðverjana. Edith var vöruð við því að hún þyrfti að láta vita af breskum hermönnum. Hún gæti hjúkrað þeim en um leið og hægt var ættu þeir að fara í fangabúðir. Í bókinni er sagt ítarlega frá stríðinu og störfum Edithar og fjölda annarra við að aðstoða hermenn að ná heilsu og komast út úr Belgíu. En svo kemur að því, í byrjun ágúst 1915, að leynimakkið dugar ekki lengur. Leitað er í íbúð hennar og þó að hún hafi brennt öll gögn um breska hermenn finnst einkabréf sent frá Bretlandi. Hún er þá handtekin og sett í fangelsi. Diana Souhami lýsir aðstæðum í fangelsinu og hvernig Edith var yfirheyrð aftur og aftur. Hún reyndi að segja sem minnst en trú hennar bannaði henni að neita þegar leynilögreglumennirnir báðu hana að staðfesta það sem þeir höfðu fundið út á annan hátt. Yfirheyrsluskýrslan var skrifuð á þýsku sem Edith skildi ekki og var hún augljóslega færð í stílinn. Á næstu dögum voru margir í andspyrnuhring hennar handteknir. Hún var látin dúsa í fangelsi þangað til réttarhöldin fóru fram í byrjun október. Þar var hún dæmd til dauða ásamt fjórum öðrum. Tugir annara voru dæmdir í langa fangelsisvist. Hún var svo tekin af lífi snemma morguns 12. október 1915. Bók Diönu Souhami er meira en ævisaga þó að sú saga sé nóg til þess að gera bókina áhugaverða. Lýsingarnar á aðstæðum í Bretlandi á ofanverðri 19. öld, á fyrri heimsstyrjöldinni og á and­ spyrnuhreyfingunni í Belgíu gera hana enn áhugaverðari. Ekki síst er bókin lofsöngur til hjúkrunarfræðings sem sinnti kalli sínu og týndi lífinu fyrir það að hjálpa náunganum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.