Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201236 Jón Aðalbjörn Jónsson, jon@hjukrun.is „2010/32 - 11.05.2013“ Í þessari talnarunu felast úrræði til varnar lífi þínu! Tilskipun ESB 2010/32 tók gildi 10. maí 2010. Hún færir í lagabúning rammasamning aðila vinnumarkaðarins um forvarnir gegn slysum vegna beittra áhalda á sjúkrahúsum og í heilbrigðisþjónustunni. Markmiðið með tilskipuninni er að koma í veg fyrir slys og blóðbornar sýkingar af völdum slíkra áhalda. Í desember 2004 gáfu tvenn samtök, sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga á aðild að, Evrópusamtök félaga hjúkrunarfræðinga (EFN) og Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga (ICN), út sameiginlega yfirlýsingu undir yfirskriftinni „Öruggar nálar vernda líf“. Með yfirlýsingunni kölluðu hjúkrunarfræðingar eftir aðgerðum af hálfu Evrópubandalagsins (ESB) en þær ættu að miða að öruggari nálum og búnaði tengdum þeim. Í yfirlýsingunni kom fram að áverkar af völdum nála og annarra beittra áhalda og hætta á alvarlegum sýkingum af þeirra völdum væru veruleg ógn við heilsu og öryggi hjúkrunarfræðinga um alla Evrópu. Þó að hjúkrunarfræðingar séu sá hópur sem skilgreindur er í hvað mestri hættu á að verða fyrir áverkum af völdum beittra áhalda eru læknar, hreinsitæknar og starfsfólk þvottahúsa einnig í hættu. Varlega áætlað verða heilbrigðisstarfsmenn í Evrópu fyrir um 1 milljón stunguskaða af völdum mengaðra nála á ári hverju, þar af tengjast um 40% tilvikanna hjúkrunarfræðingum. Verði áverkinn af völdum óhreins beitts áhalds er hættan á smiti 1 af hverjum 3 hvað varðar B­lifrarbólgu, 1 af 30 á C­lifrarbólgu og 1 af 300 á HIV. EFN og ICN kölluðu eftir því að ESB fjárfesti í samblandi af þjálfun, bættum starfsháttum og áhöldum með innbyggðum stunguvörnum. Evrópuþingið samþykkti í febrúar 2005 ályktun um að stuðla sérstaklega að heilsusamlegu og öruggu vinnu umhverfi. Ályktunin fól í sér ákall til framkvæmda­ stjórnar ESB um að hún tryggði að aðildarlöndin innleiddu sérstök úrræði

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.