Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 42
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201238
ÚTDRÁTTUR
Þeim fjölgar ört sem fá sykursýki en sykursýkin getur
valdið fylgikvillum sem rýra lífsgæði og auka kostnað við
heilbrigðisþjónustu. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina
hvað hefur áhrif á langtímasykurgildið (HbA1cgildið). Hugað
er sérstaklega að þekkingu, sjálfseflingu og streitu sem og að
bakgrunnsþáttum sem áhrif geta haft á langtímasykurgildið.
Þátttakendur voru 143 einstaklingar með sykursýki. Níutíu
einstaklingar tóku þátt í rannsókn 1, sem framkvæmd var árið
2002 meðal fólks með sykursýki af tegund 1. Í rannsókn 2 voru
þátttakendur 53 með sykursýki af tegund 2, en rannsóknin var
gerð árin 20052007. Allir svöruðu þrem spurningalistum, auk
þess spurningum um bakgrunnsþætti. Langtímasykurgildið
var mælt hjá öllum. Borið saman við fólk með sykursýki af
tegund 1 svaraði fólk með tegund 2 færri spurningum rétt á
þekkingarkvarða, hafði minni skilning á meðferð sykursýkinnar og
átti verra með að laga sig „á jákvæðan hátt að þeirri staðreynd“
að vera með sykursýki. Þátttakendur með langtímasykurgildi
≥7,5% sýndu marktækt minni skilning á sykursýkismeðferð
sinni heldur en þátttakendur með langtímasykurgildi undir 7,5%.
Streita og menntun höfðu fylgni við langtímasykurgildið og þau
tengsl virðast að mestu óháð öðrum þáttum. Einstaklingar
með framhaldsskólapróf eru næstum fimmfalt líklegri en
einstaklingar með grunnskólamenntun eingöngu til að mælast
með langtímasykurgildi undir 7,5%. Huga þarf sérlega vel að
fólki sem er með sykursýki af tegund 2 og litla menntun þar sem
það sýndi minni skilning á meðferð sjúkdómsins og var með
hærra langtímasykurgildi en þeir sem höfðu framhaldsskólapróf
eða meiri menntun. Einnig þarf heilbrigðisstarfsfólk að huga vel
að þeim sem hafa fengið mörg stig á streitukvarða þar sem það
tengist háu langatímasykurgildi.
Meginhugtök: Sykursýki, sálfélagslegir þættir, langtímasykurgildi.
INNGANGUR
Sykursýki verður æ algengari á Íslandi. Árið 2007 var algengi
sykursýki af tegund 2 5,6% hjá körlum og 3,0% hjá konum
2584 ára og því er talið að um 4% þjóðarinnar séu með
sykursýki af gerð 2 (Bolli Þórsson o.fl., 2009). Sykursýki veldur
fylgikvillum sem rýra lífsgæði og eru dýrir fyrir heilbrigðiskerfið.
Mesti kostnaður við sykursýkina er vegna fylgikvilla hennar og
innlagna á sjúkrahús. Að sögn Alþjóðasykursýkisambandins
Árún K. Sigurðardóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
Kjartan Ólafsson, hug og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri
TENGSL ÞEKKINGAR, SJÁLFSEFLINGAR, STREITU OG
TEGUNDAR SYKURSÝKI VIÐ LANGTÍMASYKURGILDIÐ
ENGLISH SUMMARY
Sigurdardottir, A., Olafsson, K.
The Icelandic Journal of Nursing (2012), 88 (1), 38-45
THE LONG TERM BLOOD GLUCOSE LEVEL AND
ITS RELATION TO KNOWLEDGE, EMPOWERMENT,
DISTRESS AND TYPE OF DIABETES
The prevalence of diabetes is increasing and diabetes can
cause complications that affect the quality of life of people
with diabetes and increases cost of care. The aim of the
study was to analyze knowledge, empowerment and distress
as well as background factors affecting the long term
blood glucose level. Participants were 143 individuals with
diabetes. Ninety individuals with Type 1 diabetes participated
in Study 1, which was conducted in the year 2002. In Study
2, 53 individuals with Type 2 diabetes participated. The
study was conducted in the years 20052007. Participants
answered three instruments, demographic questions and
the long term blood glucose level was measured. Compared
with people with Type 1 diabetes those with Type 2 diabetes
answered fewer items correct on the knowledge test, had
less understanding of diabetes and its treatment, and were
less able to fit diabetes into their life in a positive manner.
Those with HbA1c level ≥7.5% had significantly lower
understanding of diabetes and its treatment compared with
people with lower HbA1c level. Educational level and scoring
on the distress scale correlated significantly with the HbA1c
level and the relations are mostly independent of other
factors. Those with high school exams are almost five times
more likely to have HbA1c level < 7.5%.
Care of people with Type 2 diabetes and lower education need
to be given more priority as they showed less understanding
of diabetes and its treatment and their long term blood
glucose level was higher. As scoring on the distress scale
correlated with the HbA1c level, health care professionals
should consider distress among people with diabetes.
Key words: Diabetes, psychosocial factors, long term blood
glucose level.
Correspondance: arun@unak.is
Um höfunda: Dr. Árún K. Sigurðardóttir er prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri og sérfræðingur í hjúkrun fólks með sykursýki.
Kjartan Ólafsson er með meistaragráðu í félagsfræði og er lektor við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri.
About the authors: Árún K. Sigurðardóttir, RN, holds a PhD in Health Science and is a professor at the Department of Health Sciences at the University of
Akureyri. She is a certified expert in diabetes nursing.
Kjartan Ólafsson holds a MA of Sociology and is an assistant professor at the Department of Health Sciences at the University of Akureyri.
Hagsmunatengsl: Engin.
Conflicts of interest: None.