Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2014, Page 13
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 90. árg. 2014 9
þessa mikilvægu stund í lífi sjúklinganna
en margir þeirra eru að koma í fyrsta sinn
í flugvél.
Dagskráin er viðburðarík og dagarnir
líða fljótt. Fastráðna starfsfólkið vinnur
í flugvélinni 45 vikur á ári og þekkir vel
gang mála. Starfið tekur á félagslega en
allir borða saman, vinna saman og eyða
oft líka helgunum saman. Hótelherbergið
er orðið að heimili þeirra og fjölskyldulífið
afar takmarkað.
Jacqueline hefur starfað í fimmtán ár um
borð í fljúgandi augnskurðstofunni. Henni
fannst þessi stöðugu ferðalög erfið fyrst
í stað en kann nú að meta að hafa lífið í
föstum skorðum. Hún segist kunna vel
við starfið og er ánægð með að geta veitt
mönnum sjónina aftur þar sem þeir fá þá
líka sjálfstæði. Hún þakkar fyrir hvern dag
sem hún fær að þjóna sjúklingum sínum.
Í næsta herbergi lýkur Leonardo Skype
símtali við konuna sína en hún býr í
Manila. Hann er 59 ára og stoltur yfir
að hafa unnið um borð í 17 ár. Hann
var óánægður með launin heima fyrir
og fór að vinna á stóru augnsjúkrahúsi
í Ríad í SádiArabíu, þar sem voru 12
skurðstofur, en þurfti ekki að hugsa sig
lengi um þegar honum var boðið starf hjá
Orbis. Honum finnst erfitt að vera svona
mikið frá fjölskyldunni en hefur samt
aldrei séð eftir því að hafa valið þetta
starf. Hann segir starfið veita sér mikla
ánægju og tækifæri til að sjá heiminn.
Nú er kominn föstudagur og síðasti
aðgerðardagurinn fyrir Orbis í Addis
Ababa. Einnig koma margir sjúklingar í
endurmat eftir aðgerð. Börnin eru ánægð
með að geta losað sig við augnpúðana.
Alazar spyr hvort hann megi horfa á
teiknimynd og hjúkrunarfræðingarnir
leyfa það góðfúslega áður en þeir skoða
augað nánar. Alambra gerir ráð fyrir að
sólgleraugun hans muni gera hann að
aðalstjörnunni á munaðarleysingjahælinu.
Yohanna á enn eftir að uppgötva nokkrum
dögum seinna að hann getur núna séð
átta metra frá sér. Nýr heimur er að
opnast honum.
Næsta dag mun DC 10flugvélin leggja
af stað í mörg þúsund kílómetra ferðalag
til þess að aðstoða aðra við að ná
sjóninni aftur. Næstu þrjár vikur verður
hún í Sambíu. Í Addis Ababa bíða nú
þegar mörg hundruð sjúklingar eftir að
galdraflugvélin komi aftur.
Orbis fær nýja flugvél
Orbis er bandarísk hjálparstofnun sem vinnur að því
að bjarga sjón manna í þróunarlöndum. Eitt verkefni
stofnunarinnar er að reka fljúgandi augnskurðstofu en
hún tók á loft 1982 og er sú eina sinnar tegundar í heimi.
Aðalmarkmið Orbis er hins vegar ekki að lækna heldur
að þjálfa heilbrigðisstarfsmenn í þróunarlöndum í því að
sinna sjálfir augnsjúklingum.
Í byrjun árs 2015 verður flugvélinni skipt út fyrir nýja af
tegundinni MD-10. Hún er eins og fyrirrennarinn gjöf
frá Federal Express í Bandaríkjunum. Í vélinni verða níu
sérsniðnar einingar sem hægt er að taka út og setja inn
aftur eftir þörfum.