Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2014, Blaðsíða 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2014, Blaðsíða 23
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 90. árg. 2014 19 að forgangsraða hverjir fá að fara fram úr rúmi. Auk þess hefur með fækkun starfsfólks tími til að sinna félagslegum þörfum heimilismanna minnkað en það dregur úr öryggi þeirra og örvun og eykur á félagslega einangrun og einmanakennd. Slík þjónusta er afturför um tugi ára. Því miður er ástandið á Sólvangi ekki einsdæmi. Má í því sambandi nefna nýlegt dæmi þar sem rekstur Sunnuhlíðar fór í þrot og ríkið tók að sér reksturinn og á öðru hjúkrunarheimili var íbúa gefinn rangur lyfjaskammtur með alvarlegum afleiðingum. Til að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks þurfa starfsaðstæður að vera góðar. Til starfsaðstæðna telst fjöldi starfsmanna, menntun og samsetning mannaflans, vinnutími svo sem lengd vakta og fjöldi aukavakta, vinnuálag, truflanir og fleiri þættir sem áhrif hafa á vellíðan og öryggi starfsmanna. Margoft hefur verið bent á mikilvægi fagþekkingar starfsfólks fyrir lífslíkur sjúklinga á sjúkrahúsum og ekki síður fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum. Í rannsókn, sem gerð var á vinnuumhverfi og líðan starfsfólks í umönnun aldraðra á Íslandi samanborið við hin Norðurlöndin frá árinu 2011, kemur í ljós að starfsfólk í umönnun aldraðra á Íslandi hefur minni menntun, er að jafnaði yngra og með styttri starfsaldur en á hinum Norðurlöndunum. Til eru margar rannsóknir sem sýna að of lítil mönnun, lítil menntun starfsfólks og röng samsetning mannaflans getur ógnað öryggi sjúklinga og aukið hættu á óæskilegum atvikum og alvarlegum mistökum sem leitt geta til dauða sjúklinga. Nú síðast birtist grein í tímaritinu Lancet þar sem niðurstöður stórrar rannsóknar, sem gerð var í 11 löndum innan Evrópu auk fjögurra landa utan Evrópu, sýna að um samhengi milli mönnunar og menntunar hjúkrunarfræðinga og öryggis sjúklinga er að ræða. Fyrsti höfundur greinarinnar er Linda Aiken sem áður hefur rannsakað samband hjúkrunar­ mönnunar og dánartíðni sjúklinga í Bandaríkjunum. Rannsóknin er hluti af stóru evrópsku rannsóknarverkefni RN4CAST þar sem rannsakaðar eru vinnuaðstæður hjúkrunar fræðinga, gæði þjónustu og atvik þar sem sjúklingar verða fyrir skaða. Mikilvægt er að meta mönnun í hjúkrun í tengslum við öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu. Til að reyna að áætla þörf fyrir mönnun á sjúkrahúsum hafa verið útbúin ýmis mælitæki, og mönnunarmiðvið hjúkrunarheimila hafa verið unnin af Embætti landlæknis en hafa ekki verið tekin í notkun. Upplýsingaskylda og skráning óvæntra atvika Í lögum um landlækni og lýðheilsu frá 2007 er kveðið á um skráningu óvæntra atvika og tilkynningaskyldu heilbrigðisstarfsfólks um óvænt atvik. Þar segir að heilbrigðisstofnanir og þeir sem veita heilbrigðisþjónustu skuli halda skrá um óvænt atvik í þeim tilgangi að finna skýringar á þeim og leita leiða til að tryggja að þau endurtaki sig ekki. Með óvæntu atviki er átt við óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem valdið hafa sjúklingi tjóni eða hefðu getað valdið sjúklingi tjóni. Þar segir enn fremur að öllum heilbrigðisstarfsmönnum og öðru starfsfólki heilbrigðisstofnana, eftir því sem við á, sé skylt að skrá öll óvænt atvik. Í lögunum er einnig fjallað um tilkynningaskyldu en þar segir að þeim sem veita heilbrigðisþjónustu beri að tilkynna landlækni án tafar um óvænt atvik sem valdið hafi eða hefði getað valdið sjúklingi alvarlegu tjóni, svo sem dauða eða varanlegum örkumlum. Jafnframt skal upplýsa sjúkling um hið óvænta atvik án ástæðulausra tafa og nánustu aðstandendur hans þegar það á við. Það eru því ekki eingöngu siðareglur hjúkrunarfræðinga sem leggja þær skyldur á þá að láta vita verði þeir vitni að einhverju því í starfsemi stofnunarinnar heldur eru þær einnig lögbundnar. Hér á landi hefur ekki gengið sem skyldi að fá heilbrigðisstarfsmenn til að skrá óvænt atvik. Upplýsingar um fjölda óvæntra skaða á sjúkrahúsum hérlendis liggja ekki fyrir, en ef niðurstöður úr erlendum rannsóknum eru yfirfærðar á Ísland má gera ráð fyrir 50­300 dauðsföllum árlega hér á landi vegna óvæntra skaða. Samkvæmt stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er það hlutverk hjúkrunarfræðinga að efla heilbrigði, vellíðan og lífsgæði og draga úr og koma í veg fyrir þjáningar meðal þjóðarinnar. FÍH hvetur alla hjúkrunarfræðinga, hvar sem þeir starfa, að segja frá ef þeir telja öryggi sjúklinga á einhvern hátt ógnað. Meðvirkni með ríkjandi ástandi getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði sjúklinga og starfsmenn. Hjúkrunarfræðingar eru

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.