Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2014, Blaðsíða 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2014, Blaðsíða 45
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 90. árg. 2014 41 sjúklingar nota óhefðbundar aðferðir án vitundar heilbrigðis starfsfólks. Allt er varðar óhefð bundna meðferð er sett undir sama hatt þó rannsóknir sýni jákvæð áhrif með ferðar. Nú eigum við rannsóknir sem styðja notkun ákveðinna jurta til að bæta og viðhalda heilsu. Allt sem bætir líðan sjúklinga okkar á að standa þeim til boða og kallar því á að heilbrigðis­ starfsfólk fjalli um óhefð bundna meðferð án fordóma og fordæmingar. Framtíðarverkefni eru nefnd tengd öldrunar hjúkrun og heima þjónustu. Fram tíðar spá um fjölda einstaklinga 65 ára og eldri hefur staðist og því ætti þörf eldri borgara fyrir þjónustu ekki að koma neinum á óvart. Sérhæfing í hjúkrun hefur tekið miklum breytingum og þekking í öldrunarhjúkrun er viðurkennd í samfélaginu. Þegar sér fræðingar í hjúkrun aldraðra tala þá hlustar samfélagið. En er farið eftir ráðlegginum þeirra? Nei, ekki að öllu leyti. Aðbúnaður aldraðra á stofnunum og hjúkrunarheimilum er mun betri en fyrir 25 árum en hvað er stór hluti sem fær ekki þjónustu við hæfi? Mig grunar að þetta prósentuhlutfall sé enn óhagstætt, það eru of margir sem fá ekki þjónsutu sem þeir þurfa á að halda. Niðurskurður hefur ekki einungis bitnað á gæðum öldrunarþjónustu heldur einnig fjölda einstaklinga sem fá og hafa aðgang að nauðsynlegri þjónustu. Verkefni hjúkrunarfræðinga er eins og fyrir 25 árum að standa vörð um öldrunarþjónustu. Menntun hjúkrunarfræðinga Fyrir 25 árum var andinn í þjóðfélaginu sá að nám í hjúkrunarfræði væri of langt. Það vantaði hjúkrunarfæðinga til starfa og það þyrfti að mennta þá. Leið til að fjölga hjúkrunarfræðingum á landsbyggðinni var að setja upp nám á Akureyri, tveggja, þriggja eða fjögurra ára nám. Við gátum komið í veg fyrir að úr yrði tveggja ára hjúkrunarnám með því að byrja strax með fjögurra ára BS­nám þó að það væri skipulagt jafnóðum og kennsla fyrsta árgangsins fór fram. Ég má varla til þess hugsa ef okkur hefði mistekist. Í dag stöndum við með tvær sterkar deildir í háskólum, fram haldsmenntun hér innanlands, rannsóknar stofnanir og vísindavinnu í hjúkrunar fræði. Þessi framtíðarsýn var í óra fjarlægð fyrir 25 árum en er dæmi um hvað hægt er að gera ef áhugi, vilji og geta eru til staðar. Þó er eitt sem við verðum að bæta og það eru tengsl hjúkrunarstéttarinnar við hjúkrunar menntun í landinu. Menntunin, mennta stofnanir, kennarar og fræðimenn mega ekki verða einangrað fyrirbæri þar sem þröngur hópur skapar menntun og fræðastarf eftir sínum áhugasviðum. Rannsóknir í hjúkrun verða að styðja við þjónustu hjúkrunarfræðinga og háskólarnir að svara kröfum þjóðfélagsins fyrir þekkingu og undirbúa nemendur sína fyrir þá þjónustu sem einstaklingar samfélagsins fara fram á. Það er úrelt hugsun að „við“ heilbrigðisstarfsfólkið vitum hvað er „best“ fyrir einstaklinga eða samfélag. Í ávarpi, sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Ólafur G. Skúlason, hélt á fundi hjúkrunarstjórnenda nýverið, lagði hann áherslu á samstarf og samvinnu allra sem koma að hjúkrun og þróun hjúkrunarfræði. Kallaði hann eftir auknu samstarfi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og háskólanna. Aukið samstarf allra sem hlut eiga að máli kemur hjúkrunarfræði og stöðu hjúkrunar til góða í samfélaginu. Staða hjúkrunar í samfélaginu Ég lýsti ákveðnum áhyggjum varðandi það að hjúkrunarfræðingar væru að snúa sér frá grunnatriðum hjúkrunar sem er að líta sérstaklega á einstaklinginn í umhverfi sínu út frá grunnþörfum hans, þ.e. hreinlæti, hreyfingu, næringu, svefni, hvíld og samskiptum við aðra. Tók ég dæmi varðandi hreyfingu og næringu. Athugasemdir mínar eiga enn við og hvetja okkur til að eiga gott samstarf við þær heilbrigðisstéttir sem sérhæfa sig á þessum sem og öðrum sviðum þjónustunnar. Einnig er sérhæfing innan hjúkrunar stöðugt að aukast og mikilvægt að ráðgjöf sé virk meðal sérfræðinga í hjúkrun. Við getum sagt með orðum Benner að sú þróun sé enn í barnæsku og tækifærin þar því mikil. Forvarnarstarf og fræðsla um heilbrigða lífshætti voru orðin sem notuð voru fyrir heilsueflingu og lýðheilsu. Ég spurði hversu langt við gætum gengið í að lagfæra það sem aflaga hefur farið varðandi heilsu og benti á forvarnar starf. Í lýðheilsufræðum hefur orðið bylting og leika hjúkrunarfræðingar þar stórt hlutverk með sína þekkingu á grunn­ þörfum einstaklingsins svo og þekkingu í kennslu fræði og stjórnun. Spá mín fyrir fram tíðina er að hjúkrunar fræðingar eiga eftir að taka virkan þátt innan sem utan heilbrigðis kerfisins í að efla heilbrigði þjóðarinnar með virku starfi að forvörnum og heilsueflingu. Lokaorð Í upphafi erindis míns fyrir 25 árum spurði ég: Hvaða kröfur gerir samfélagið til hjúkrunar og hver eru þau verkefni sem hjúkrunarfræðingar verða að takast á við, í starfi og menntunarmálum? Við sjáum ekki fyrir hvaða sjúkdómar munu þróast meðal þjóða, hvert tæknileg þróun leiðir okkur eða hvaða áhrif ný lyf hafa á sjúkdóma. En við erum farin að sjá hvað heilbrigður lífsstíll gerir fyrir heilsu og þau vandamál sem mannkynið glímir við. Því er gott að hafa spurningarnar opnar og getum því notað sömu spurningarnar aftur eftir 25 ár. Ég treysti því að hjúkrunarfræðingar svari þessum spurningum nú og í framtíðinni út frá þörfum samfélagsins fyrir hjúkrun og þjónustu hjúkrunarfræðinga. Margrét Tómasdóttir er hjúkrunar fræðingur MS, lögfræðingur ML og talsmaður sjúklinga á Landspítala.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.