Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Síða 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Síða 10
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 20126 Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is LÖG UM HEILBRIGÐISSTARFSMENN OG REGLUGERÐ UM HJÚKRUNARFRÆÐINGA Lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 voru samþykkt á Alþingi í maí sl. Með þessum nýju lögum eru allar 33 löggiltu heilbrigðisstéttirnar felldar undir ein lög. Hjúkrunarlög og önnur sérlög um einstakar stéttir falla niður við gildistöku laga um heilbrigðisstarfsmenn, 1. janúar 2013. Undirbúningur rammalöggjafar um heil­ brigðis starfsmenn hefur staðið yfir í mörg ár. Félag íslenskra hjúkrunar fræðinga (FÍH) og Læknafélag Íslands hafa ætíð lagst gegn setningu rammalaga um heilbrigðisstarfsmenn og að sérlög um hjúkrunarfræðinga og lækna falli brott. FÍH hefur meðal annars vísað í lagalega sérstöðu stéttarinnar í lögum um heilbrigðisþjónustu. Þar er skýrt kveðið á um faglega ábyrgð deildarstjóra hjúkrunar innan heilbrigðisstofnana á hjúkrunarþjónustu og á sambærilegan hátt er kveðið á um ábyrgð lækna (10. gr.). Ekki er kveðið á um ábyrgð annarra heilbrigðisstétta á sama hátt í lögunum. Megintilgangurinn með hinum nýju lögum er sagður vera að samræma og einfalda gildandi ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn og tryggja betur gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur til heilbrigðisstarfsmanna. Nokkur mikilsverð nýmæli eru í lögunum. Þar er til dæmis kveðið á um að heilbrigðis­ starfsmaður skuli virða faglegar tak­ markanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns þegar við á. Þetta á við um alla heilbrigðisstarfsmenn. Einnig að starfssvið heilbrigðisstétta verði ákveðið á grundvelli þekkingar og hæfni með tilliti til hagsmuna sjúklinga. Í lögum um heilbrigðisstarfsmenn segir að ráðherra skuli, í samráði við landlækni, viðkomandi fagfélag og menntastofnun hér á landi, setja reglugerðir sem kveða á um þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að fá starfsleyfi og mega starfa hér á landi. Ráðherra er einnig heimilt að setja reglugerðir sem kveða á um skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfa, að höfðu samráði við sömu aðila. Drög að reglugerð um menntun, réttindi og skyldur hjúkrunarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi hafa verið til umsagnar í FÍH. Um faglegar kröfur og ábyrgð hjúkrunarfræðinga segir í drögunum: • Hjúkrunarfræðingur skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru á hverjum tíma. • Hjúkrunarfræðingi ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur, viðhalda þekkingu og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið. • Hjúkrunarfræðingur skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðis­ starfs menn og heilbrigðis þjónustu og önnur lög og stjórn valds fyrirmæli eftir því sem við á. • Hjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á for­ vörnum, hjúkrunarfræðilegri greiningu og með ferð þeirra sjúklinga sem til hans leita og hann hefur umsjón með. • Hjúkrunarfræðingur skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt sjúklingi viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Meðal þeirra breytingatillagna sem FÍH gerði við reglugerðardrögin var að skýra ábyrgðarsvið hjúkrunarfræðinga enn frekar með því að bæta við 4. málsgreinina: “Hjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á forvörnum, hjúkrunarfræðilegri greiningu og meðferð þeirra sjúklinga sem til hans leita og hann hefur umsjón með, auk faglegrar stjórnunar hjúkrunar í heilbrigðisþjónustu.” Umsögn FÍH um reglugerðardrögin er aðgengileg á vefsvæði félagsins hjukrun. is undir liðnum útgefið efni. Lög um heilbrigðisstarfsmenn og reglugerð um hjúkrunarfræðinga skilgreina þær menntunarkröfur sem gera þarf til hjúkrunarfræðinga og sérfræðinga í hjúkrun hér á landi. Lögin og reglugerðin afmarka einnig réttindi og skyldur hjúkrunarfræðinga og því er nauðsynlegt að hjúkrunarfræðingar kynni sér málin vel. Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.