Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Page 20
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201216
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
„LANDSLAGIÐ TOGAÐI
MIG HINGAГ
Á Borgarfirði eystri hefur síðastliðin sextán ár verið búsettur þýskur
hjúkrunarfræðingur. Susanne Neumann kom fyrst þangað sem hestastelpa en
heldur nú uppi heilbrigðisþjónustunni á staðnum.
Susanne Neumann kom til Íslands í júlí
1993 til að vinna á bóndabýli. Hún var
þá þegar hjúkrunarfræðingur en treysti
sér ekki til að vinna við hjúkrun. Því
valdi hún að vinna við hesta. „Ég var þá
nýútskrifuð þannig að ég hafði ekki mikla
vinnureynslu. Mér fannst engan veginn
hægt að vinna hérna mállaus og heldur
ekki sem aupair,“ segir hún. Hún hafði
kynnst þýskri konu sem býr á Íslandi
og hjálpaði konan henni við að finna
stað. Susanne kom svo aftur til Íslands
nokkrum sinnum áður en hún ákvað að
setjast hér að. Henni líður vel á Íslandi
og sér ekki fram á að flytjast aftur út. „Ég
ætla bara að vera hér á Íslandi og helst
á Borgarfirði þó svo að ég verði síðasta
manneskjan sem flytur héðan,“ segir hún.
Susanne er frá Heilbronn sem er 50 kíló
metra norðan við Stuttgart. Þar ólst hún
upp og fór í menntaskóla. Á mennta
skólaárunum heyrði hún skemmti lega
lýsingu á Íslandi í útvarpinu sem vakti
áhuga hennar á landinu. Um 1990 fór
hún með skátunum í ferð til Skandinavíu
og þótti henni Norðurlöndin mjög
áhugaverð. Svo lá leiðin á stórt geð
sjúkrahús þar sem einnig er hjúkrunar
skóli. Í hjúkrunarnáminu hitti hún annan
hjúkrunarnema sem hafði áhuga á að fara
til Íslands. Þær byrjuðu að skipuleggja
Íslandsför með það fyrir augum að vinna
á sjúkrahúsi í Reykjavík. Vinkonan fór
hins vegar að vinna annars staðar og
heltist úr lestinni.
Á þessum árum fékk Susanne mikla
reynslu af því að vinna með erlendum
hjúkrunar fræðingum. Til Þýskalands
komu þá hjúkrunar fræðingar frá Póllandi,