Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Side 31
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 27
fáar eins manns. Í kjallara er eldhús og borðstofa starfsfólks,
rannsóknarstofa, tvö móttökuherbergi lækna, miðstöð
fyrir hitunarkerfið, sem er rafmagnshitun og olíukynding til
vara, smíðaverkstæði o. fl. Í neðri kjallara eru geymslur og
frystiherbergi.
Hæð herbergja frá gólfi til lofts er 3 metrar. Litirnir eru yfirleitt ljósir
en daufir. Sjúkra stofurnar grænar og alls staðar hvít loft.
Flutningur frá hinu ágæta og heillaríka húsi, gamla spítalanum,
fór fram 15.desember 1953. Allir sjúklingarnir, 47 að tölu,
voru komnir í rúm á Fjórðungssjúkrahúsinu kl. 10.30 f.h. enda
byrjað að flytja snemma morguns og ötullega unnið að.
Þetta var stór dagur fyrir Akureyri og alla er að undirbúningi
fyrirtækisins höfðu staðið. Sumum fannst jólin vera komin,
stóru settu marki var náð og allir erfiðleikar við lækningar og
hjúkrun sjúkra í Norðlendingafjórðungi voru nú til lykta leiddir. Í
einu orði sagt, mönnum fannst þetta dásamlegur dagur.
En svo kom það, sem alltaf kvað brydda á í nýjum húsum
þegar farið er að reyna þau, ýmis konar vöntun og vandkvæði,
og meiri erfiðleikar og vinna mættu starfsfólkinu hér en það
hefði nokkurn tíma áður reynt.
Reksturskostnaður var áætlaður svo hár að nær ókleyft þótti
og óvíst um sjúklingafjölda, svo að starfsliðið var í byrjun haft
eins lítið og framast mátti gera sér vonir um að nægði til að
veita sjúklingum þá þjónustu er þörf krefði.
Þótt hugsað hefði verið fyrir fyrirkomulagi ýmissa hluta áður en
flutt var risu upp nýjar, óteljandi spurningar og breytingartillögur.
Starfsfólk varð fljótt of fátt því að aðsókn að sjúkrahúsinu
varð þegar mikil og tvær deildirnar yfirfylltust fyrr en varði.
Fæðingardeildin tók til starfa 17. janúar og blandaða deildin
skömmu síðar.
Smám saman, með miklum dugnaði, ósérhlífni og yfirvinnu
hjúkrunar kvennanna og annarra tókst að bæta úr mestu vand
ræðunum. Starfsliðið var aukið nokkuð svo við það sem er má
una þegar vitað er um fjárskortinn og að vonir standa til bóta
um ýmsa hluti. Starfsliði er nú, með 120 sjúklinga að meðaltali:
• 4 læknar
• 1 læknanemi
• 10 hjúkrunarkonur auk einnar sem vinnur 2 tíma á dag
• 2 ljósmæður
• 6 hjúkrunarnemar
• 17 starfsstúlkur á göngum
• 1 stúlka í röntgen
• 1 stúlka við rannsóknir
• 1 nuddlæknir sem vinnur stund úr degi
• 1 ráðskona
• 5 eldhússtúlkur
• 1 ráðsmaður
• 3 karlmenn til ýmissa verka.
Óvænt voru viðhorf sjúklinganna í fyrstu, flestir sem legið höfðu
á gamla spítalanum söknuðu hans. Fannst nú, að þar hefði verið
svo heimilislegt og vingjarnlegt. Þetta var að vísu gott nú en svo
langt milli allra og hver fylgdist síður með öðrum.
Húsbúnaður er svo til allur nýr. Sjúkrarúm eru keypt frá Svíþjóð
en sjúkraborð og stólar og flest önnur húsgögn eru smíðuð á
Akureyri. Borðbúnaður er úr ryðfríu sænsku stáli, nema bollar
og diskar og sjúkragögn einnig þar sem því verður við komið.
Uppþvottur á sjúkraleirtau er sameiginlegur fyrir allar deildir.
Um reynslu allra þessara nýju hluta er ekki margt að segja enn,
nema margt er ágætt og öðru verður breytt, vonandi fyrr en
seinna, svo að það fái sama dóm. Frá nýári til marzloka hafa
útskrifast af sjúkrahúsinu 209 sjúklingar.
Ragnheiður Árnadóttir fæddist 1920 og
lauk námi við Hjúkrunarkvennaskóla Íslands
1944. Hún varð forstöðukona sjúkra
hússins á Akureyri 1945 og sinnti því
starfi í áföngum til 1986. Hún stundaði
framhaldsnám í heilsuvernd og spítalastjórn
í Danmörku og vann um tíma í Danmörku
og í Noregi.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta