Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Qupperneq 32
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201228
Aðalbjörg Finnbogadóttir og Elsa B. Friðfinnsdóttir, adalbjorg@hjukrun.is
HEILBRIGÐISÁÆTLUN TIL ÁRSINS 2020
Hjúkrunarfræðingar láta sig
varða heilbrigði landsmanna og
hafa því tekið virkan þátt í að
móta heil brigðisáætlun velferðar
ráðu neytisins. Tímarit hjúkrunar
fræðinga mun fylgjast áfram með
þessari vinnu. Sagt var frá árangri
af fyrri áætlun í 1. tbl. 2011 og
nú er röðin komin að áætlun fyrir
2020.
Velferðarráðuneytið vinnur þessa
dagana að heilbrigðisáætlun til ársins
2020. Í áætluninni er birt framtíðarsýn
í heilbrigðis málum til ársins 2020, auk
mark miða og aðgerða til að ná þeim
árangri sem stefnt er að. Við gerð
heilbrigðisáætlunarinnar var lögð rík
áhersla á víðtækt samráð. Í þeim anda var
boðað til þjóðfundar um heilbrigðismál í
mars 2012 sem 220 fulltrúar tóku þátt
í, þar á meðal fjórir fulltrúar frá Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH).
Drög að áætluninni hafa verið kynnt og var
öllum boðið að koma með athugasemdir.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
þáði boðið og sendi frá sér bæði
athugasemdir og tillögur að breytingum.
Drögin að heilbrigðisáætluninni má finna
á heimasíðu velferðarráðuneytisins.
Í drögunum segir að í því samráðsferli
sem fram fór við undirbúning
heilbrigðisáætlunar hafi þrjú leiðarstef
komið fram í umræðunni en þau eru:
1. Mikilvægi þess að þjónusta sé öllum
aðgengileg, samþætt og samfelld
þannig að öruggt sé að fólk lendi hvorki
á milli þjónustukerfa né mismunandi
þjónustustiga sama kerfis.
2. Að heilsugæslan hafi meiri breidd í
þjónustu með aðkomu fleiri fagaðila,
þannig að hún geti betur sinnt for
vörnum og fylgt eftir langvinnum heil
brigðisvandamálum, svo sem geð
rænum og lífsstílstengdum vanda
málum.
3. Að í heilbrigðisþjónustu séu öflug,
samræmd og samtengd upplýsinga
kerfi sem fagfólk og notendur hafi
nauðsynlegan aðgang að. Þannig
mætti auka samfellu í þjónustu,
auka gæði auðvelda eftirlit og
skipulag þjónustu og rannsóknir í
heilbrigðisvísindum.
Framtíðarsýn og stefna velferðarráðuneytis
er að íbúar landsins búi við jöfnuð,
heilbrigði og vellíðan. Stefnan er sett
fram í markmiðum sem endurspegla
hugmyndafræði, framtíðarsýn og gildi
og er markmiðunum skipt í eftirfarandi
efnisþætti:
A. Jöfnuð í heilsu og lífsgæðum.
B. Lífsstílstengda áhrifaþætti heilsu og
forvarna.
C. Örugga, samþætta og samfellda
velferðar þjónustu.
Aðgerðaráætlun er sett fram með
markmiðum þar sem undir hverju
markmiði eru settir fram sértækir
mælikvarðar, skilgreindar aðgerðir og
kostnaðarmat.
FÍH fagnar gerð heildstæðrar velferðar
stefnu og heilbrigðisáætlunar til ársins
2020 þar sem leitast er við að móta
framtíðarsýn í heil brigðis málum þjóðar
innar. Áætlun, þar sem er lögð áhersla á
jöfnuð með því að tryggja aðgengi allra,
óháð efna hag, að við eigandi velferðar
þjónustu, jöfnuð í heilsu og líðan, virkni og
þátttöku í atvinnu lífi og sam félagi ásamt
því að auka vellíðan fólks með sjúk dóma
og fækka ótíma bærum dauðs föllum. Í
áætluninni er einnig tekið á lífsstíls tengdum
áhrifa þáttum heilsu og áhersla lögð á
forvarnir. Markmið og aðgerðir eru settar
fram fyrir tíu áhrifaþætti sem miða að
bættri heilsu og er þar að finna margar
góðar tillögur og aðgerðir. Hins vegar telur
FÍH helstu meinbaugi áætlunarinnar að hún
er á stundum ekki nógu skýr eða afmörkuð
til að verða það leiðarljós sem til þarf. Í
drögunum er víða að finna almennt orðuð
markmið, mælikvarða og aðgerðir sem
ekki eru nógu skýrar til að vinna eftir. Sem
dæmi má nefna kaflann um heilsugæsluna,
skilgreiningar vantar í kaflann um sjúkrahús
og sérfræðiþjónustu, mannaflakaflinn er
óskýr og fleira mætti telja.
Eftirfarandi eru dæmi um athugasemdir
félagsins við markmið um heilsugæslu
og mannafla í heilbrigðisþjónustunni.
Umsögnina í heild er að finna á vefsvæði
félagsins hjukrun.is.