Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Page 42
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201238
Það er heilmikil vinna fólgin í hverjum
pakka. Það er enginn matur í honum en
slíkt fer í sér pakka sem aðrar deildir sjá
um. Þetta eru aðallega hlífðarföt fyrir hvíta
Rússland og ekki alveg eins þykk föt fyrir
Malaví en þar getur verið kalt á nóttunni.
Það hafa verið um 1720 konur sem hafa
komið að þessu. Sumar útbúa eitthvað
heima en aðrar mæta og við sitjum saman
og vinnum á mánudögum,“ segir Þóra.
Seyðisfjörður
Á Seyðisfirði hefur fólki fækkað eins og
á mörgum stöðum á landsbyggðinni.
Fiskvinnslan hefur minnkað umsvif sín
og önnur fyrirtæki hafa hætt störfum.
Sjúkrahúsið er því orðið stór vinnustaður.
Ferjan Norræna kemur vikulega til
Seyðisfjarðar frá Færeyjum og Danmörku.
Yfir sumarið fá kennarar frá Seyðisfirði og
eitthvað af fólki að sunnan atvinnu við
að þjónusta ferjuna og farþega hennar
en yfir veturinn eru umsvifin minni.
Stundum þurfa farþegar að heimsækja
heilsugæsluna en Þóra segist sjaldan
verða vör við það á sjúkradeildinni.
Í bænum er ýmis afþreying í boði. „Það
er leikfélag í bænum og höfð spilakvöld.
Svo hafa verið bíósýningar. Auðvitað er
líkamsræktarstöð og við höfum öflugt
blakfélag. Blak hefur aðallega verið
öldungaíþrótt hingað til en nú hefur verið
stofnuð unglingadeild. Annars finnst mér
bara gaman að fara út að ganga, það er
svo fallegt hér,“ segir Þóra sem á stóran
hund sem þarf að viðra.
Skemmtileg en krefjandi vinna
Þóru finnst mjög gaman að vinna á
heilabilunardeild. Það sé krefjandi og
ögrandi að vinna þar við hjúkrun. Hún
segist þó vera dálítið áhyggjufull vegna
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sl. ár boðið hjúkrunarfræðingum
að halda nám skeið í húsa kynnum félagsins og hefur það mælst vel fyrir.
Í haust hefur Bráðaskólinn haldið námskeið um bráðahjálp
fullorðinna og einnig um bráðahjálp barna. Nám skeiðin eru
vinsæl og hafa fengið góða dóma. Leiðbeinendur eru Ásgeir
Valur Snorrason og Sesselja Haukdal Friðþjófsdóttir.
Námskeiðið Núvitund er haldið í samvinnu við fagdeild
geðhjúkrunar fræðinga. Núvitund er nýtt orð fyrir það sem kallað
hefur verið gjörhygli (e. mindfulness) og hefur hlotið mikla athygli
síðustu ár. Námskeiðið, sem byrjaði í lok september og stendur
fram í desember, varð fljótlega full bókað og myndaðist biðlisti.
Í nóvember verður haldið hið sívinsæla námskeið Guðbjargar
Pálsdóttur um sár og sárameðferð. Hún hefur kennt það í mörg
ár en ekkert lát er á áhuga sömum nemendum. Þegar þetta
tölublað fór í prentun voru aðeins nokkur sæti laus á námskeiðið.
Vel heppnuð námskeið
þess hversu erfiðlega hefur gengið
að manna deildina. Vonandi mun það
lagast því Seyðisfjörður er töfrandi
staður og kjörinn fyrir heilbrigðisstarfsfólk
sem vill vinna við endurhæfingu og
öldrunarhjúkrun. Stutt er í fjölbreytta
þjónustu á Egilsstöðum. Sumir eru
hræddir við fjallveginn en Þóru finnst það
ekki áhyggjuefni. „Ég hef ekki fundið fyrir
að það sé erfitt að búa hér. Í fyrravetur
voru ekki margir dagar sem var ekki
opið yfir fjallið,“ segir hún. Og þegar yfir
Fjarðarheiðina er komið opnast annar
heimur.