Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Page 52
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201248
ÚTDRÁTTUR
Við þróun kynfræðslunámsefnis fyrir unglinga er mælt með
því að þeir séu virkir þátttakendur í ferlinu og er það talið
mikilvægt til þess að námsefnið nái betur til þessa aldurshóps.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að forprófa nýtt námsefni
meðal unglinga og skoða kosti og takmarkanir innleiðingar
þess. Nýtt kynfræðsluefni, samtals átta kennslustundir, var
forprófað í sex 8. bekkjum eins grunnskóla í Reykjavík haustið
2010. Sjö nemendur í framhaldsnámi við Háskóla Íslands sáu
um kynfræðsluna auk þess sem höfundur kom að kennslunni.
Til þess að fylgjast jafnóðum með framvindu kennslunnar var
gert ferlismat á innleiðingu hennar. Til grundvallar því mati voru
lagðir ákveðnir matsþættir fyrir hverja kennslustund í heild sinni
og fyrir hvern efnisþátt hennar en einnig skiluðu nemendur
skriflegum niðurstöðum úr hópæfingum. Niðurstöður sýndu að
nemendur voru áhugasamir um efnið og tóku að jafnaði virkan
þátt í hópæfingunum. Kennurunum gekk almennt vel að kenna
efnið en fannst þeir þurfa meiri tíma til að vinna æfingarnar. Alls
fengu 87% æfinga og allar metnar glærur mjög gott eða gott
mat. Fram komu margar góðar hugmyndir frá nemendum við
úrvinnslu hópæfinga og það sýndi góðan skilning þeirra á efninu.
Í lok kennslunnar höfðu nemendur náð heildrænum skilningi á
kynheilbrigði. Hópastarf er kennslufræðilega krefjandi. Þjálfun í
hópastarfi er því mikilvægur undirbúningur undir þessa kennslu.
Námsefnið er álitlegt til frekari prufukennslu í nokkrum skólum eftir
að búið er að taka mið af athugasemdum þessarar forprófunar.
Lykilorð: Kynfræðsla, unglingar, ferlismat.
INNGANGUR
Rík áhersla hefur verið lögð á alhliða kynfræðsluefni (comprehensive
sexuality education) um allnokkurt skeið bæði vestan hafs og
austan (FoSE, 2011; IPPF, 2010; SIECUS, 2004; UNESCO,
2009; Wilkenmann og Ketting, 2011). Alhliða kynfræðsla er
með víðtæka nálgun. Það er viðurkennt að einstaklingurinn
hefur kynferðislegar tilfinningar, verði kynferðislega virkur og
þurfi á því að halda að átta sig á mörgum hliðum kynlífs.
Hann þurfi því að fá markvissa fræðslu, skoða viðhorf og
öðlast færni sem hjálpar honum að taka góðar ákvarðanir
varðandi kynlíf og vera ábyrgur gjörða sinna. Ýmsar stofnanir
svo sem kynfræðslusamtökin í Bandaríkjunum (SIECUS=
Sexuality Information and Education Council of the United
States), Alþjóðasamtök um fjölskylduáætlun (IPPF= International
Sóley S. Bender, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
FERLISMAT Á NÝJU KYNFRÆÐSLUEFNI FYRIR UNGLINGA
Um höfundinn
Dr. Sóley S. Bender er prófessor við hjúkrunarfræðideild Hálskóla Íslands og forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði við hjúkrunarfræðideild
Hálskóla Íslands og Landspítala.
About the authors:
Sóley S. Bender, PhD, is a Professor at the University of Iceland Faculty of Nursing and Director of research and development in sexual and
reproductive health at the University of Iceland Faculty of Nursing and Landspitali University Hospital.
Hagsmunatengsl: Engin.
Conflicts of interest: None.
ENGLISH SUMMARY
Bender, S.S
THE ICELANDIC JOURNAL OF NURSING (2012), 88 (4), 4856
NEW SEXUALITY EDUCATION PROGRAM:
PROCESS EVALUATION
Active participation of adolescents in the development of
a sexuality education program is recommended. Such an
approach is important to make a program more suitable for
this age group. The purpose of this research project was to
pilot test a new sexuality education program for adolescents
and explore the costs and benefits of its implementation. A
new sexuality education curriculum of eight lessons was pilot
tested in six classes among eight grade students within one
primary school in Reykjavík in the fall of 2010. Seven graduate
students at the University of Iceland taught the lessons along
with the author. Process evaluation was performed in order
to find out how the teaching proceeded. This evaluation was
based on an overall evaluation of each lesson and its parts as
well as written outcomes of the exercises by the students. The
results showed great interest among the students in the subject
and they were participating actively in the group exercises most
of the time. Generally the teaching went well but the teachers
found the group exercises time consuming. In total 87% of the
group exercises and all of the evaluated transparencies received
very good or good scores. The group exercises created many
good ideas among the students which demonstrated their
good understanding of the content. In the end of the teaching
the students had grasped the holistic view of sexual and
reproductive health. The group exercises were pedagogically
demanding and it is therefore important to be trained in group
work before teaching this curriculum. The program is promising
for further testing in some schools after taking the recommended
changes of this pilot test into consideration.
Keywords: Sex education, adolescents, process evaluation.
Correspondance: ssb@hi.is