Þjóðmál - 01.09.2012, Side 36
Þjóðmál haust 2012 35
saman í hópa eins og greint var frá hér að
ofan, þá er stefnt að því í framtíðinni að
þau lönd sem þess óska geti átt samstarf
við At lants hafsbandalagið á tilteknum svið-
um sem þau semja um, en önnur svið geti
verið und an skilin . Þetta þýðir að 28 aðild-
ar ríki band alagsins munu vinna saman með
„utan garðs ríkjum“ að verkefnum sem geta
tengst áætlanagerð, stjórnunarfræði að-
gerða, borgaralegri og hernaðarlegri sam-
vinnu, þjálfun og menntun, vörnum gegn
hryðju verkum, vopnaþróun, notkun loft-
rýmis, endurskipulagningu, endurnýjun,
af vopn un, vísindum í friðsamlegum til-
gangi og al manna vörnum . Þannig hafa
rúm lega 1500 sam starfs verkefni af ýmsum
toga verið ráðgerð .
Atlantshafsbandalagið vill efla og styrkja
samstarf við önnur lönd sem ekki eru aðilar
að bandalaginu . En hér þarf að gera ráð fyrir
sérstökum vandamálum sem geta komið
upp . Allar ákvarðanir Atlantshafsbanda-
lagsins eru teknar með samþykki allra
aðildarríkja . Það er engin atkvæðagreiðsla
með meiri hluta ákvörðunum, sem þýðir að
hvert og eitt aðildarríkjanna 28 hefur í raun
neitunar vald . Samstarfslöndin, sem ekki eru
aðilar að bandalaginu, hafa hins vegar ekki
ákvörð unar vald, en bandalagið tekur tillit
til sjónar miða þeirra . Þeim mun fleiri sem
taka þarf tillit til við ákvarðanir, þeim mun
erfiðara er að að ná samstöðu . Árangurinn
verður því oft minni en ella og niðurstaðan
getur stundum endað í innihaldslitlum
málamiðlunum . Þetta sést glögglega þegar
stofnanir verða mjög stórar eða víðfeðmar
eins og Sameinuðu þjóðirnar eða Öryggis-
og Samvinnustofnun Evrópu .
En hvaða ásteytingarmál verða
hugsanleg í veröldinni á 21 . öldinni?
Náttúruauðlindir
A ðgangur að náttúruauðlindum er mikilvægur fyrir alla en þær eru ekki
óþrjót andi . Spurningin kann því að verða
hvort allar náttúruauðlindir eigi að fara undir
alheims stjórn eða hvort þær eigi að vera
áfram í einkaeign þjóða, jafnvel örþjóða eins
og Íslands? Rússland, stærsta land jarðar, er
gríðarlega auðugt af margvíslegum hráefnum .
Rússar eru hins vegar ekki nema um 140
milljónir meðan Kínverjar eru 10 sinnum
fjölmennari og Kínverja mun skorta ódýr
hráefni í framtíðinni . Augljóst er að brugðið
getur til beggja átta hjá Rússum að hafa
slíkan risa sem nágranna . Það getur verið gott
viðskiptalega séð, en alvarlegt ef stóri kaupand-
inn/nágrann inn fer að setja afarkosti .
Enginn vafi er á að Kínverjar gera sér grein
fyrir nauðsyn þess að eiga sterkan al heims her
til að gæta fjárfestinga sinna og við skipta-
hagsmuna erlendis . Það mun eiga sérstaklega
við í þeim löndum eða landssvæðum þar
sem gnótt er hráefna en ríkisstjórnir eru
ístöðulitlar . Þetta er kannski ekki ólíkt því
hvernig Bandaríkjamenn hafa seilst til áhrifa
um víða veröld síðastliðin 80 ár .
Fólksfjölgunin
Talið er að á jörðinni hafi búið um einn milljarður manna árið 1800 . Árið 1900
var mannfjöldinn kominn í 1½ milljarð, 3
A ðgangur að náttúruauðlindum er mikilvægur fyrir alla en þær
eru ekki óþrjótandi . Spurningin
kann því að verða hvort allar
náttúruauðlindir eigi að fara undir
alheimsstjórn eða hvort þær eigi að
vera áfram í einkaeign þjóða, jafnvel
örþjóða eins og Íslands?