Þjóðmál - 01.09.2012, Side 65
64 Þjóðmál haust 2012
Síðasta vor, nánar tiltekið 8 . mars, hélt frjálshyggjuhópur Sambands ungra
sjálfstæðismanna (SUS) málfund í Valhöll
um stöðu hægristefnunnar . Á fundinum var
einkum leitað svara við þeirri spurningu hvað
íslenskir hægrimenn geti lært af atburðum
síðustu ára og hvaða hugmyndafræðilegu
stefnu þeir eigi að taka .
Framsögumenn voru fjórir af atkvæða -
mestu hugmyndafræðingum íslenskra frjáls -
hyggju- og íhaldsmanna á síðustu árum:
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor
í stjórn málafræði við Háskóla Íslands,
Gunn laugur Jónsson, framkvæmdastjóri
og at hafna maður, Jakob F . Ásgeirsson, rit-
stjóri Þjóðmála og útgefandi, og Óli Björn
Kárason, rit stjóri og varaþingmaður Sjálf-
stæðis flokksins . Annar kunnur vara-
þingmaður flokksins, Sigríður Andersen,
héraðsd ómslögmaður og ein af aðstand end-
um Andríkis, flutti síðan ávarp í fundar lok .
Fundurinn var ágætlega sóttur og hann
heppnaðist vel í alla staði . Ræðurnar voru
innihaldsríkar og beittar . Framsögumenn
voru spurðir spjörunum úr á milli erinda,
umræður voru líflegar og svör gagnleg .
Aðstandendur fundarins fengu afar jákvæð
viðbrögð frá fundargestum að fundi
loknum, sem sögðust sumir ekki muna
eftir jafn mikilvægum og áhugaverðum
fundi um stjórnmál og hugmyndafræði .
Grundvallarmál voru rædd „af hreinskilni
og hispursleysi“, eins og einn fundargestur
orðaði það .
Eins og ég rakti í inngangserindi mínu
sem fundarstjóri, þá er því stundum haldið
fram í þjóðmálaumræðunni að frjáls hyggju-
menn í heiminum séu í vörn, að efa semdir
hafi læðst að þeim, að stefna þeirra hafi
ekki reynst raunhæf, að frjáls hyggjan hafi
beðið skipbrot . En ekkert er fjær sanni .
Frjálshyggjumenn hafa aldrei verið vissari
í eigin sök, aldrei verið sannfærðari um
að stefna þeirra sé eina raunhæfa leiðin,
aldrei verið ákafari gegn hvers kyns
málamiðlunum — gegn pils falda kapítal-
isma og blönduðu hagkerfi . Mikil vægt er að
krafturinn og gerjunin í hugmynda baráttu
frjálshyggjumanna í Bandaríkj unum og
víða annars staðar nái hingað til lands .
Ásgeir Jóhannesson
Ný sókn
Lærdómur af málfundi frjálshyggjuhóps
SUS um stöðu hægristefnunnar