Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 92

Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 92
 Þjóðmál haust 2012 91 miklir áhugamenn um hagfræði, og jafn vel öfugt . Hvers vegna? Rökrétt hagfræði kennir okkur að stöðugt peningamagn í umferð er betra en eilíf innspýting ríkisvaldsins á fé í umferð . Hún kennir okkur líka að auðsöfn- un og fjárfestingar bæta framlegð og auka auð sköpun hins venjulega vinn andi manns . Hagfræðin kennir okkur að tilrauna starf- semi, athafnafrelsi, fram seljanlegt eignar- hald á takmörkuðum gæðum, lágir eða engir skattar og sem minnstar viðskiptahindr anir eru leiðin til efnislegrar velsældar . Sé svo gert ráð fyrir því að flestir kjósi allsnægtir fram yfir hungur, heilsu fram fyrir sjúkdóma, húsnæði fram fyrir líf á götunni, ný og heil föt fram fyrir götótta garma, og margt fleira, komast margir hagfræðingar að þeirri skoð- un að takmarkað og verulega lítið ríkisvald er betra en stórt og fyrirferðarmikið ríkis vald . Þetta er samt ekki hagfræði, heldur siðfræði sem flestir ættu að geta stutt — sú siðfræði að vilja sem mesta velmegun og sem best lífsgæði fyrir sem flesta . Frjálshyggjumenn sækja í sjóði hagfræðinnar og nota niður- stöður hennar til að rökstyðja ágæti ein- stakl ings frelsis og eignaréttar, en hvoru tveggja eru frjálshyggjumenn vissulega hlynnt ir af réttlætisástæðum, án tilvísunar til hagfræðinnar . Hagfræði er engu að síður ekki frjáls- hyggja, og frjálshyggja er ekki hagfræði . Hag fræði menntaður maður getur haft þá skoðun að fólk eigi ekki að njóta vaxandi allsnægta, færri sjúkdóma og tjáningarfrels- is . Sá hagfræðingur mælir því með auknum ríkisafskiptum, hærri sköttum og fleiri tak- mörkunum á athafnafrelsi einstaklinga . Frjálshyggjumaðurinn getur verið glóru laus um allsnægtaráhrif takmörkunar á ríkisvaldi, en engu að síður verið á móti ríkisafskiptum og stjórnsemi ríkisvaldsins af þeirri einu ástæðu að þannig sé réttlætinu best fullnægt . Frjálshyggjumennirnir, sem skrifuðu stjórn- ar skrá Bandaríkjanna, vís uðu ekki í bækur hagfræðinnar heldur „náttúru legan“ rétt mannsins til að fá að ráða sér sjálfur, og varpa ríkisvaldinu af sér ef það hætti að þjóna honum . En oftast gera frjáls hyggjumenn sér grein fyrir því að hugmynda fræði þeirra er meinholl fyrir hag kerfið, að því gefnu að meiri auður og meiri allsnægtir fyrir fleiri og fleiri sé jákvætt markmið . Hrunið á rætur sínar að rekja til þess að skorið var á tengsl athafnafrelsis og ábyrgðar, en um það er ágætlega fjallað í Ábyrgðarkverinu, sem kom út fyrir skömmu .[3] Bankar fengu svigrúm til að fjölfalda peninga og taka mikla áhættu með þá í trausti þess að ef allt færi til fjandans væri ríkisvaldið og seðlabanki þess tilbúið að standa við bakið á þeim . Gróðinn væri þeirra sem tækju áhættuna á meðan hún borgaði sig, en tapið skyldi sent til skattgreiðenda . Þetta kerfi er enn við lýði, og nýtur enn stuðnings þorra almennings, sem og Stefáns Snævars ef marka má ýmsa kafla í bók hans . Sú hugmyndafræði sem skóp aðstæðurnar sem leiddu til hrunsins er enn ráðandi meðal stjórnmálamanna . Að boða riftun á tengslum ríkis og hagkerfis, yfirvalds og peningaútgáfu er talin firra og að auki óframkvæmanleg . En ef almenningur vill í raun og veru að ríkisvaldið, þrátt fyrir hrikalega sögu sína í sæti peningaprentarans, fái að halda áfram að gefa út peninga, þá skulum við bara gera okkur grein fyrir því að annað hrun er óumflýjanlegt og á næsta leiti, og sennilega önnur bók frá Stefáni líka þar sem frjálshyggjunni er kennt um glundroða ríkisafskiptanna, enn og aftur . Heimildir 1 . McMillan, Robert . 2012 . Xerox: Uh, We Didn’t Invent the Internet. Sótt 28 . júlí 2012 . http://www . wired .com/wired enter prise/ 2012/07/xerox-internet/ 2 . Keynes, John Maynard . 1936 . The General Theory of Employment, Interest and Money. New York: Harcourt, Brace and World . 3 . Gunnlaugur Jónsson . 2012 . Ábyrgðarkver. Sögur .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.