Þjóðmál - 01.12.2012, Síða 5
4 Þjóðmál VETUR 2012
Uglubækur 2012
Ugla útgáfa ehf. • Hraunteigi 7 • 105 Reykjavík
www.uglautgafa.is • nb@simnet.is • s. 698-9140
vík . Ég lenti í 12 . sæti í prófkjörinu, með
2 .205 atkvæði samanlagt í 1 .–8 . sæti .
Ég bauð mig fram vegna þess að mér fannst Sjálfstæðisflokkurinn þurfa
á rót tækri endurnýjun á að halda . Mér
fannst flokkur inn hafa verið alltof kraft-
lítill í stjórna randstöðu og ekki hafa staðið
nægilega vörð um grundvallarsjónarmið sín .
Þetta hefði leitt til þess að vinstrimenn hefðu
undanfarin ár nánast fengið frítt spil . Þessi
gagnrýni átti jafnt við um sjálfstæðismenn á
þingi sem í borgarstjórn .
En stuðningsmenn flokksins í Reykjavík
virðast algerlega ósammála þessu mati eins
og niðurstaða prófkjörsins í Reykjavík sýnir
glöggt .
Fjórir þingmenn flokksins, sem buðu
sig fram til endurkjörs, hlutu allir örugga
kosn ingu . Aðrir, sem hlutu brautar gengi í
próf kjörinu, voru oddviti borg ar stjórnar-
flokksins, sem fékk glæsilega kosn ingu í
efsta sætið, varaþingmaður, sem hafði tvisvar
áður tekið þátt í prófkjöri (7 . sætið), borgar-
fulltrúi með sterk ættar tengsl í flokkn um
(8 . sætið), vara borgar fulltrúi, sem starfað
hafði í hverfa félögum (9 . sætið), gamal-
reynd flokkskona, sem tekið hafði þátt í
nokkrum prófkjörum (10 . sætið), og ung ur
lögfræðingur með sterk ættartengsl í flokkn-
um (11 . sætið) . Þeir sem komu „nýir“ inn,
þ .e . menn sem ekki höfðu áður starfað innan
flokks ins eða í umboði hans, voru aðeins
Brynjar Níelsson, sem hreppti 4 . sætið, og
ritstjóri Þjóðmála, sem varð sem fyrr segir í
12 . sæti . „Róttæka endurnýjunin“, sem ég
hafði vonast eftir, felst því aðeins í Brynjari
Níelssyni, þar sem 12 . sætið verður í besta
falli 1 .–2 . varaþingsmannssæti í öðru hvoru
kjördæminu í Reykjavík .
Dyggustu stuðningsmenn Sjálfstæðis flokks-
ins í Reykja vík vilja greinilega „meira af því
sama“, ef svo má segja . Þeir eru augljóslega
sáttir við mál flutning full trúa sinna á undan-
förnum árum, hvort sem er á þingi eða í
borgarstjórn . Þá sýnast þeir ekki vilja „ný“
andlit, heldur fremur fólk sem hefur sterk
sambönd innan flokksins, annaðhvort vegna
ættar tengsla eða vegna starfa í þágu flokks ins .
A lmennt má segja að til að ná árangri í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þurfi að
uppfylla eitt eða fleiri af þremur skilyrðum,
þótt á því séu vissu lega undan tekn ingar:
Í fyrsta lagi að hafa úr nægum fjár mun um
að moða . Frambjóðandi þarf að safna 2–5