Þjóðmál - 01.12.2012, Side 13

Þjóðmál - 01.12.2012, Side 13
12 Þjóðmál VETUR 2012 með lifandi dýr . Í orði segir Steingrímur J . að hann vilji að sjálfsögðu hindra inn- flutning lifandi dýra . Á borði eltir hann hins vegar utanríkisráðuneytið sem vill ekki að neitt sé sagt með þeim orðum í Brussel að viðmælendur þar telji að sér vegið með skýrum kröfum og skilyrðum . Stendur enn í stappi innan utanríkismálanefndar alþingis vegna þessa eftir umræður þar síðan í ágúst . Þá hefur slitnað upp úr viðræðum innan íslenska hópsins um landbúnaðarmál í ESB-viðræðunum . Fulltrúar bænda telja að innan hópsins hafi embættismenn Stein- gríms J . slegið út af borðinu kröfur um tollvernd vegna íslensks landbúnaðar þrátt fyrir gefin fyrirheit í bréfi Jóns Bjarna sonar, þáv . landbúnaðarráðherra, 22 . júní 2011, um að staðinn yrði vörður um þessa vernd . Steingrímur J . kýs að gera lítið úr orðum og bréfi Jóns . Landbúnaðarhópurinn er hins vegar óstarfhæfur . Í sjávarútvegsmálum situr allt við hið sama milli Íslands og ESB á meðan makríl- deilan er óleyst . Þar er engin lausn í sjón- máli en kröfur aukast innan ESB um að Íslend ingar verði beittir refsiaðgerðum fyrir það að nýta rétt sinn í samræmi við hafréttar sátt mála Sameinuðu þjóðanna . Þróunin innan ESB er á þann hátt að óvissan um framtíð sambandsins sjálfs magnast stig af stigi . Þess vegna getur í raun enginn sagt inn í hvaða ESB Íslend- ingar mundu ganga ef hið ólíklega gerðist að sameiginleg niðurstaða fengist í aðildar- viðræðunum . Eina leiðin til að binda á þetta vonlausa aðildarferli er að ný ríkisstjórn komi til sögunnar á Íslandi . Stjórn Jóhönnu Sig urð- ardóttur er föst í fortíðinni í ESB-málinu, hún er bundin af samþykkt alþingis frá 2009 sem í raun er úrelt vegna breyttra aðstæðna . III . Þegar Jóhanna Sigurðardóttir ræddi stjórnarskrármálið í stefnuræðu sinni 12 . september 2012 sagði hún meðal annars: Alþingi Íslendinga hefur þá skyldu gagn - vart almenningi að nálgast það úr lausn ar- efni sem nú liggur fyrir [í stjórn ars krár- málinu] af mikilli virðingu og metnaði . Láta verður af deilum um formsatriði og snúa sér að efni máls . Þar kunnum við að hafa mismunandi sýn á tiltekin atriði en þó er þar fleira sem sam einar okkur en sundrar . Í ljósi þess hvernig haldið hefur verið á stjórn arskrármálinu eftir hina fokdýru skoð anakönnun ríkisstjórnarinnar 20 . okt óber 2012 eru ofangreind orð Jóhönnu Sig urðar dóttur hrein öfugmæli . Á alþingi hefur alls ekki verið lögð áhersla á að nálgast stjórnarskrármálið „af mikilli virð- Þ róunin innan ESB er á þann hátt að óvissan um framtíð sambandsins sjálfs magnast stig af stigi . Þess vegna getur í raun enginn sagt inn í hvaða ESB Íslend ingar mundu ganga ef hið ólíklega gerðist að sameiginleg niðurstaða fengist í aðildar viðræðunum . Eina leiðin til að binda á þetta vonlausa aðildarferli er að ný ríkisstjórn komi til sögunnar á Íslandi .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.