Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 26
Þjóðmál VETUR 2012 25
og leiddi þá baráttu til sigurs, þrátt fyrir
úrtöluraddir í vinstriflokkunum fyrir
útfærsluna og úrtöluraddir í eigin flokki,
þegar spennan var sem mest .
Óumdeilt er að ríkisstjórn Geirs Hall-
grímssonar hafði náð verulegum árangri
í baráttu við óðaverðbólguna vorið 1977,
þegar hún var komin úr 52% vorið 1974
niður í 26% í maí 1977 .
En jafn óumdeilt er að sá árangur fór fyrir
bí með sólstöðusamningum vinnuveitenda
og verkalýðshreyfingar í júní 1977 .
Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens gekk frá
borði vorið 1983 og skildi eftir sig verðbólgu
á ársgrundvelli sem var komin yfir 100% og
þá var verðtrygging komin til sögunnar .
Það er svo mál út af fyrir sig að þegar
horft er á efnahagsstjórn Íslands yfir 20
ára tímabil er það saga um ótrúlegt fúsk
og klúður . Á þessum tíma var nægileg
vitneskja og þekking fyrir hendi til þess
að halda betur á málum . Það var ekki
gert vegna þess að forystumenn á sviði
stjórnmála voru fyrst að hugsa um eigin
pólitískan hag, síðan um hagsmuni flokka
sinna, þá um þá hagsmunahópa sem höfðu
greiðastan aðgang að þeim og síðast um
heildarhagsmuni þjóðarinnar . Frá þessu er
ein undantekning þ .e . forsætisráðherratíð
Geirs Hallgrímssonar 1974–1978 .
Óumdeilt er að Geir Hallgrímsson skilaði
Sjálfstæðisflokknum af sér sameinuðum,
með meðalfylgi í þingkosningum og aðild
að ríkisstjórn haustið 1983 . Þetta var
Hallur skorar illvígasta TABÚ veraldar á hólm
Váfugl gerist seint á núöld þegar Ísland leitar útgöngu úr stórríki Evróníu ...
Eyjatröllið Krummi tekst á við hinn svarta váfugl sem hefur hreiðrað um sig
djúpt, djúpt í myrkviðum mannlegrar vitundar.
„Besta bók frá Íslandi síðan SJÁLFSTÆTT FÓLK...“
- Dan Hannan, Evrópuþingmaður
„Allt í senn hrollvekja, spennusaga og ádeila ...“
- Hrafn Jökulsson
Lævíslega læðist kolsvartur váfugl aftan að mannkyni ...
Nýir tímar - Ný útgáfa
„Þú hefur fundið helvíti, minn kæri Krummi!“ hrópar Helgi undrandi.
„Dýflissu mannkyns,“ botnar tröllið.
Váfugl brýnir,
glyrnur gráðugar,
ágrind, öfund,
mannlíf siðspillist.
Klær kreppast.