Þjóðmál - 01.12.2012, Qupperneq 31
30 Þjóðmál VETUR 2012
árunum 1999–2008 dæmt í málum þar
sem reynir á hlutafélagalögin .
Á árunum frá 1998 til 2008 óx fjár mála-
markaður á Íslandi verulega að umfangi .
Bankarnir juku útlán sín til innlendra
viðskiptavina, byrjuðu að lána erlendum
viðskiptavinum sjá 1 . mynd, bls . 29),
stofnuðu útibú og dótturfyrirtæki erlendis,
auk þess sem bankarnir hófu innlánasöfnun
erlendis í gegnum útibú sín þar . Þar ber
helst að nefna Icesave-innlánareikninga
Landsbanka Íslands hf . í Bretlandi og
Hollandi, þar sem innlánin uxu mjög hratt .
Þannig uxu innlán erlendis um 2,1 milljarð
EUR (Seðlabanki Íslands, 2008a) frá lokum
júní 2008 til loka september 2008, en það er
um það bil sú fjárhæð sem samningar hafa
staðið um í viðræðum íslenskra stjórnvalda
við stjórnvöld í Bretland og Hollandi .
Á þessu tímabili, sem 2 . og 3 . mynd vísa
til, voru tveir ríkisbankar gerðir að hluta-
félögum, þ .e . Landsbanki Íslands og Bún-
aðarbanki Íslands, og fjárfestingarsjóðum
steypt saman í Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins (FBA), þ .e . Fiskveiðasjóði Íslands,
Iðn þróunarsjóði og Iðnlánasjóði . FBA var
síðar sameinaður banka sem hafði orðið
til úr ríkisbanka, þ .e . Útvegsbanka Íslands,
og þremur einkabönkum, þ .e . Alþýðu-
bankanum hf ., Iðnaðarbanka Íslands hf . og
Verslunarbanka Íslands hf . Að lokum voru
hinir nýju bankar einkavæddir .
Á árunum frá 2003 til 2008 gerðust
hlutir sem enginn sá fyrir og enginn
eftirlitsaðili lét sig varða, en sumir höfðu
mikla hagsmuni af . Fjármálakerfið stækkaði
og útlán bankanna jukust úr því að vera
einföld landsframleiðsla í fimm- til sex föld
landsframleiðsla og eru þá ótalin út lán í
dótturfélögum erlendis .
Síðustu ríkisbankarnir voru gerðir að
hlutafélögum árið 1998 og seldir og einka-
væddir árið 2003 . Þá hófst veruleg út -
lána aukning í bankakerfinu, bæði til inn-
lendra og erlendra lántaka, einstaklinga og
fyrirtækja .
2. mynd. Útlán bankakerfisins . Þróun útlána til innlendra og erlendra aðila í innlendum hluta
bankakerfisins, í þúsundum króna (Seðlabanki Íslands, 2008b) .