Þjóðmál - 01.12.2012, Page 36

Þjóðmál - 01.12.2012, Page 36
 Þjóðmál VETUR 2012 35 Forseti lýðveldisins og ráðherrar í ríkis- stjórninni tóku þátt í kynningar átaki íslensku bankanna erlendis fram á mitt árið 2008 . Þannig segir forseti Íslands í ræðu hjá Sagnfræðingafélagi Íslands um „útrásina“: Svarið er líka fólgið í því að vel sé hugað að undirstöðum, að hin metnaðarfulla útrásarsveit haldi ávallt áttum, glati ekki jarðsambandi þótt vel gangi, meti áfram að verðleikum samfélagið sem þau hefur fóstrað og komi fram af virðingu og sanngirni ekki aðeins við íslenska þjóð heldur einnig við íbúa annarra landa, gleymi ekki að útrásin byggir í grunninn á sögu, menningu og siðviti * Íslendinga .“ (Ólafur Ragnar Grímsson, 2006, bls . 9) . Þegar fjármálakerfi heillar þjóðar hrynur á þann veg að yfir 60% af eignasöfnum bankanna hverfa, þarf ekki að draga í efa að eftirlitsstofnanir hafa brugðist . Það er ef til vill rangt að segja að eignasafnið hafi horfið á einu augnabliki, þar sem starfsemi fjármálafyrirtækjanna hafði um skeið þróast í eina átt, sem endaði með skelfingu í október 2008 . Af skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis verður ekki ráðið að verið hafi neinn eðlismunur á orsökum falls einstakra fjár- mála stofnana . * Leturbr . V B Eftirlitsaðilar fjármálafyrirtækja eru: Stjórnir og stjórnendur fjármála fyrir tækja• Enginn stjórnarmanna eða stjór n enda o fjár málafyrirtækja hefur játað nokkra sök . Endurskoðendur fjármálafyrirtækja• Endurskoðunarfyrirtæki telja að upp-o gjör bankanna hafi verið í samræmi við alþjóðlegar reiknings skilavenjur og að endurskoðun hafi verið framkvæmd með fullnægjandi hætti . Kauphöll og fjármálafyrirtæki vegna • mark aðsmisnotkunar Tilkynningarskylda Kauphallar og fjár-o málafyrirtækja og starfsmanna þeirra er ótvíræð, vakni grunur um mark aðs mis- notkun . Við lestur á skýrslu rann sóknar- nefndar Alþingis um viðskipti Lands- banka, Kaup þings og Glitnis með eigin hlutabréf er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að þessir bankar hafi stund- að skipulega markaðsmisnotkun, til að halda uppi verði á eigin hluta bréfum (Páll Hreinsson o .fl ., 2010b, bls . 116) . Álykt unar orð rann sóknar nefnd ar innar koma fram í eftir farandi: „Með hliðsjón af framan sögðu telur rannsóknarnefnd Alþingis yfirgnæfandi líkur á því að þau viðskipti bankanna með eigin hlutabréf sem greiningin náði til hafi verið framkvæmd í þeim tilgangi að gefa misvísandi upplýsingar um eftirspurn eftir hlutabréfunum og hafa þannig áhrif á verð þeirra . Umfang viðskiptanna var svo mikið að ekki hefði verið mögulegt að halda kaupunum til streitu nema einhver sala kæmi á móti eða með því að flagga uppsöfnuðum eignarhlut opinberlega . Í mörgum tilvikum veittu bankarnir völdum viðskiptavinum lán á hagstæðum kjörum og jafnvel án trygginga til þess að liðka fyrir slíkum Þ egar fjármálakerfi heillar þjóðar hrynur á þann veg að yfir 60% af eignasöfnum bankanna hverfa, þarf ekki að draga í efa að eftirlitsstofnanir hafa brugðist .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.