Þjóðmál - 01.12.2012, Qupperneq 36
Þjóðmál VETUR 2012 35
Forseti lýðveldisins og ráðherrar í ríkis-
stjórninni tóku þátt í kynningar átaki
íslensku bankanna erlendis fram á mitt
árið 2008 . Þannig segir forseti Íslands í
ræðu hjá Sagnfræðingafélagi Íslands um
„útrásina“:
Svarið er líka fólgið í því að vel sé hugað
að undirstöðum, að hin metnaðarfulla
útrásarsveit haldi ávallt áttum, glati ekki
jarðsambandi þótt vel gangi, meti áfram
að verðleikum samfélagið sem þau hefur
fóstrað og komi fram af virðingu og
sanngirni ekki aðeins við íslenska þjóð
heldur einnig við íbúa annarra landa,
gleymi ekki að útrásin byggir í grunninn
á sögu, menningu og siðviti * Íslendinga .“
(Ólafur Ragnar Grímsson, 2006, bls . 9) .
Þegar fjármálakerfi heillar þjóðar hrynur
á þann veg að yfir 60% af eignasöfnum
bankanna hverfa, þarf ekki að draga í efa
að eftirlitsstofnanir hafa brugðist . Það er
ef til vill rangt að segja að eignasafnið hafi
horfið á einu augnabliki, þar sem starfsemi
fjármálafyrirtækjanna hafði um skeið þróast
í eina átt, sem endaði með skelfingu í október
2008 . Af skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis verður ekki ráðið að verið hafi neinn
eðlismunur á orsökum falls einstakra fjár-
mála stofnana .
* Leturbr . V B
Eftirlitsaðilar fjármálafyrirtækja eru:
Stjórnir og stjórnendur fjármála fyrir tækja•
Enginn stjórnarmanna eða stjór n enda o
fjár málafyrirtækja hefur játað nokkra
sök .
Endurskoðendur fjármálafyrirtækja•
Endurskoðunarfyrirtæki telja að upp-o
gjör bankanna hafi verið í samræmi
við alþjóðlegar reiknings skilavenjur og
að endurskoðun hafi verið framkvæmd
með fullnægjandi hætti .
Kauphöll og fjármálafyrirtæki vegna •
mark aðsmisnotkunar
Tilkynningarskylda Kauphallar og fjár-o
málafyrirtækja og starfsmanna þeirra er
ótvíræð, vakni grunur um mark aðs mis-
notkun . Við lestur á skýrslu rann sóknar-
nefndar Alþingis um viðskipti Lands-
banka, Kaup þings og Glitnis með eigin
hlutabréf er ekki hægt að draga aðra
ályktun en þá að þessir bankar hafi stund-
að skipulega markaðsmisnotkun, til að
halda uppi verði á eigin hluta bréfum
(Páll Hreinsson o .fl ., 2010b, bls . 116) .
Álykt unar orð rann sóknar nefnd ar innar
koma fram í eftir farandi: „Með hliðsjón
af framan sögðu telur rannsóknarnefnd
Alþingis yfirgnæfandi líkur á því að
þau viðskipti bankanna með eigin
hlutabréf sem greiningin náði til hafi
verið framkvæmd í þeim tilgangi að gefa
misvísandi upplýsingar um eftirspurn
eftir hlutabréfunum og hafa þannig áhrif
á verð þeirra . Umfang viðskiptanna var
svo mikið að ekki hefði verið mögulegt
að halda kaupunum til streitu nema
einhver sala kæmi á móti eða með því
að flagga uppsöfnuðum eignarhlut
opinberlega . Í mörgum tilvikum veittu
bankarnir völdum viðskiptavinum lán
á hagstæðum kjörum og jafnvel án
trygginga til þess að liðka fyrir slíkum
Þ egar fjármálakerfi heillar þjóðar hrynur á þann veg
að yfir 60% af eignasöfnum
bankanna hverfa, þarf ekki að
draga í efa að eftirlitsstofnanir
hafa brugðist .