Þjóðmál - 01.12.2012, Qupperneq 38
Þjóðmál VETUR 2012 37
bank anna og með stofnun Fjár fest ingar-
banka atvinnulífsins, FBA, árið 1998 og
síðar einkavæðingu þeirra .
Einkavæðingu lauk í byrjun árs 2003 .
Í þessu ferli gerðist það jafnframt að eldri
stjórnendum og starfsmönnum var ýtt til
hliðar og við tók ný kynslóð stjórnarmanna
og stjórnenda . Á sama tíma var bankaeftirlit
aðskilið frá Seðlabanka með stofnun
Fjármálaeftirlitsins þar sem bankaeftirlit
og Vátryggingaeftirlit voru sameinuð . Þar
var einnig skipt um stjórnendur . Hinir
nýju stjórnendur höfðu mjög takmarkaða
reynslu á fjármálamarkaði .
Það er á hinn bóginn alþekkt að í ná-
lægum Evrópulöndum er haft á orði
að enginn geti orðið æðsti stjórnandi í
banka án þess að hafa mikla reynslu á
fjár málamarkaði . Lágmarkið er að hafa
þraukað í gegnum eina efnahagslægð með
öllum sínum afskriftum og erfiðleikum, t .d .
að fást við vandamál sjávarútvegsfyrirtækja
þegar loðnuvertíð bregst .
Um miðjan september 2003 dró til tíð-
inda í verðbréfaviðskiptum . Aðfaranótt 18 .
september sömdu ráðandi aðilar í þeim
fyrir tækjum, sem skráð voru til við skipta í
Kauphöll Íslands, um uppskiptingu á eign-
ar haldi í sex félögum . Til samans voru þessi
viðskipti með um 42% af markaðs verði
félaga í úrvalsvísitölu Kauphallar inn—ar
(„Víð tæk uppstokkun fyrirtækja sam-
steypa“, 2003) . Þeir einstaklingar sem keypt
höfðu hluti í bönkum voru þar ráðandi .
Meginniðurstaða þessara viðskipta var
sú að eignarhald Hf . Eimskipafélags Ís-
lands færðist til Landsbanka Íslands hf ., þ .e .
viðskiptabanka félagsins .
Í tilkynningu (flöggun) til Kaup hall ar-
innar þann 26 . september 2003 er meðal
annars sagt:
Nafn tilkynningarskylds aðila, Lands-
banki Íslands hf . Heimilisfang Austur-
stræti 11 Reykjavík .
Fjöldi hluta fyrir viðskipti: 506 .520 .728 .
Fjöldi hluta eftir viðskipti: 525 .011 .323 .
Hlutfall af heildarhlutafé fyrir viðskipti:
9,83% .
Hlutfall af heildarhlutafé eftir viðskipti:
10,19% .
Landsbanki Íslands hefur að auki gert
framvirkan samning um kaup á kr .
303 .403 .659 að nafnvirði með vísan í
tilkynningu til Kauphallar Íslands þann
19 . september sl . Eignarhlutur bankans
eftir viðskiptin nemur kr . 828 .414 .982 að
nafnvirði, eða 16,08% af heildarhlutafé .
Landsbankinn hefur þar að auki umboð
til að fara með atkvæði á hluthafafundi
sem haldinn verður 9 . október n .k ., sem
nemur 10,41% af heildarhlutafé .“ (The
Nordic Exchange, e .d .)
Umskipti urðu á íslenskum fjármálamarkaði með
hlutafélagavæðingu ríkis bankanna
og með stofnun Fjár festi ngar banka
atvinnulífsins, FBA, árið 1998 og
síðar einka væðingu þeirra . . . Í þessu
ferli gerðist það jafnframt að eldri
stjórnendum og starfs mönn um var
ýtt til hliðar . . . Á sama tíma var
bankaeftirlit aðskilið frá Seðlabanka
með stofnun Fjármálaeftirlitsins þar
sem bankaeftirlit og Vátrygginga-
eftirlit voru sameinuð . Þar var
einnig skipt um stjórnendur .
Hinir nýju stjórnendur höfðu
mjög takmarkaða reynslu á
fjármálamarkaði .