Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 51
50 Þjóðmál VETUR 2012
árið 1824 amtmaður norðan og austan
og sat á Möðruvöllum . Þóra dóttir hans
stofnaði Kvennaskólann í Reykjavík 1874
og stýrði honum til 1906 . Hún giftist Páli
Melsteð sagnfræðingi, syni Páls Melsteðs
amtmanns og Önnu Sigríðar, dóttur
Stefáns Þórarinssonar amtmanns .
Ingibjörg varð herbergjastúlka í Viðey en
giftist síðar Þorgrími Tómassyni gullsmið
og skólaráðsmanni á Bessastöðum . Bréf
til Gríms bróður hennar þar sem hún
lýsir lífinu í Viðey hafa verið gefin út .
Sonur Ingibjargar og Þorgríms, skáldið
Grímur Thomsen, náði miklum frama í
utanríkisþjónustu Dana en kaus að snúa
heim og keypti Bessastaði af konungi
1867 . Þar hélt hann sig sem aðalsmaður
í tæp þrjátíu ár með konu sinni og
þjónustufólki . Foreldrar hans höfðu keypt
Engey fyrir stórfé árið 1833 af Snorra
ríka Sigurðssyni og virðist sem Grímur
hafi á tímabili hugsað sér að setjast þar
að . Ekki varð af því, en eyjan var í eigu
fjölskyldunnar fram til 1905 .
„Self made men“
Íleysingum þjóðlífsins á 19 . öld og í upphafi 20 . aldar sköpuðust tækifæri
fyrir menn af alþýðustétt, sem fæddir voru
Pétur J . Thorsteinsson útgerðarmaður, — Bíldudalskóngurinn, sem hófst af sjálfum sér til mikila
eigna, — ásamt fjölskyldu sinni í heimsókn hjá Eggert Briem í Viðey sumarið 1903 . Í Viðey var lengi
óðal voldugasta ættarveldisins á Íslandi, Stephensensættarinnar eða Stefánunga eins og ættmennirnir
voru kallaðir . (Árbæjarsafn, ljósmyndari óþekktur .) Úr bókinni Íslensku ættarveldin .