Þjóðmál - 01.12.2012, Page 55

Þjóðmál - 01.12.2012, Page 55
54 Þjóðmál VETUR 2012 samtrygginguna . Maka- og barnalífeyri ætti að leysa með því að lífeyrisréttindi gengju í arf . Örorkutryggingar ættu að vera í öðrum sjóðum til þess að halda líf- eyrissjóðum hreinum til greiðslu lífeyris . En samtryggingin hlýtur að vera þekkt stærð, þannig að hægt sé að upplýsa hvern og einn nokkurn veginn eða með ásættanlegri nákvæmni um hver staða hans sé vegna kostn aðar sem samtryggingunni fylgir . Bæði er hægt að upplýsa um hvað menn þurfa að greiða vegna samtryggingarinnar og hvað þeir fá greitt umfram, hennar vegna . Nú er rætt um hrikalegt tap í lífeyris- sjóðakerfinu, milljarða króna, vegna hruns- ins, sem valda muni því að skerða þurfi lífeyri manna í framtíðinni . Eðlilegt væri að færa upplýsingar um þetta inn á reikning hvers og eins sjóðsfélaga . Á þann hátt vissi hann fyrr um ástand mála og hægt væri að bregðast við miklu fyrr en nú er venja . Hverjir eiga lífeyrissjóðina? Þetta eru peningar fólksins og þá á fólki ð að ráða,“ segir Styrmir Gunnars son í viðtali í Frjálsri verslun . En þetta er ekki svona . Fólkið (þeir sem greiða í líf eyris- sjóðina geri ég ráð fyrir) á ekki líf eyris sjóð- ina né peningana í þeim . Allir eru skyldaðir með lagaboði að greiða í lífeyrissjóði . Þessar greiðslur eru ígildi skatta í tryggingarsjóði, sem einungis aðilar vinnumarkaðarins mega semja um og stjórna . Lífeyrissjóðirnir eru eins konar sjálfs- eignarstofnanir . Litið er á greiðslur þínar sem iðgjald, eins og þú værir að tryggja bílinn þinn . Þú átt ekki peningana sem þú greiðir trygg ingarfélaginu sem tryggir bílinn þinn, húsið þitt eða innbú o .s .frv . Þú eignast aðeins kröfur á tryggingar- félagið að vissum skilyrðum uppfylltum . Sama er að segja um stöðu þína gagnvart lífeyris sjóðunum . Það er ljóst að endurskoða þarf mál líf- eyrisþega og tengja hagsmuni þeirra betur við fjármuni þá sem í sjóðina safnast . Það þarf að ræða meira um það hvernig lífeyrissjóðirnir nái betur markmiði sínu en hverjir eigi að stjórna þeim þó það sé líka nauðsynlegt . Þ að er ljóst að endurskoða þarf mál líf eyrisþega og tengja hagsmuni þeirra betur við fjármuni þá sem í sjóðina safnast . Það þarf að ræða meira um það hvernig lífeyrissjóðirnir nái betur markmiði sínu en hverjir eigi að stjórna þeim þó það sé líka nauðsynlegt .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.