Þjóðmál - 01.12.2012, Page 62
Þjóðmál VETUR 2012 61
Jónas Ragnarsson
Litla flugan
Var fyrst flutt opinberlega fyrir sextíu árum
Þessi örstutti og leikandi létti lag stúf-ur er sannkallaður þjóðardýr gripur,“
sagði Svavar Gests í útvarpsþætti um Litlu
fluguna eftir Sigfús Halldórsson, en hún var
fyrst flutt opinberlega snemma árs 1952 .1
Samið á nokkrum mínútum
Sigfús Halldórsson vakti verulega athygli sem lagahöfundur þegar hann gerði
lögin Dagný, 1939, og Tondeleyó, 1947 .
Ljóðin munu bæði vera eftir Tómas Guð-
mundsson þó að hið fyrr nefnda hafi aldrei
birst í ljóðabókum hans .2
Veturinn 1951 til 1952 dvaldi Sigfús í
nokkrar vikur hjá vinum sínum séra Þórarni
Þór og Ingibjörgu Þór á Reykhólum í Austur-
Barðastrandarsýslu . Sigfús var þá 31 árs, og
dvaldi vestra til að jafna sig eftir veikindi .
„Þarna var lítið hægt að hafa fyrir stafni,
en svo gerði ég uppgötvun sem mér þótti
harla skemmtileg og góð,“ sagði Sigfús í
viðtali við Vísi áratug síðar .3 „Ég varð
þess áskynja að á staðnum var til píanó,
eign Sigurðar Elíassonar tilraunastjóra .“
Sigurður hafði komið vestur nokkrum
árum áður og var 37 ára .
Að sögn Sigfúsar fékk hann oft að nota
píanóið en einnig ræddu þeir Sigurður um
Sigfús Halldórsson á forsíðu Vikunnar,
ári eftir að Litla flugan tók flugið .