Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 65
64 Þjóðmál VETUR 2012
Sigurður Elíasson var tilrauna stjóri á Reykhól-
um þegar leiðir hans og Sig fúsar lágu saman .
Kona hans var Anna Ólöf Elíasson .
alþjóð . Þátturinn var á dagskrá Útvarpsins
miðvikudaginn 20 . febrúar 1952, milli kl .
21 og 22 um kvöldið . Meðan Sigfús var
að spila lagið fór rafmagnið af Reykjavík .
„Þegar nokkrar mínútur voru eftir af
þættinum kom rafmagnið aftur á og
fannst Pétri það eiga vel við að ljúka
þættinum með því að biðja mig um að
leika lagið,“ sagði Sigfús .7 Og hann lék
lagið aftur . Það tók aðeins eina mínútu og
tuttugu sekúndur í flutningi . Sigfús sagði
síðar í útvarpsviðtali: „Mig rak í rogastans
daginn eftir að hún var flutt í útvarp, þá
heyrði ég þetta blístrað út um allt, unga
og aldna .“8
Nokkrum dögum síðar var lagið „raulað
víða á skemmtistöðum bæjarins,“ eins og
Mánudagsblaðið orðaði það .9 Og ungu
kynslóðinni fannst það „agalega smart“ .10
Velvakandi Morgunblaðsins sagði: „Í hverri
götu suðar hún Litla flugan hans Sigfúsar
Halldórssonar, þessi, sem hann kom með
að vestan í vetur . Strákarnir blístra lagið
undir berum himni, húsmæðurnar raula
það við eldhúsborðið, og barnfóstran syng-
ur hvítvoðunginn í svefn .“11 Vísir sagði að
Litla flugan væri „eitt þessara laga sem læðast
alveg óafvitandi inn um hlustir manns, gerir
manni glatt í geði og áður en varir er maður
tekinn að raula það .“12
Textinn var birtur í Tímanum 13 . mars og
tveimur dögum síðar voru nóturnar komn-
ar í sölu í bókaverslunum .13
Það þótti nokkrum tíðindum sæta þegar
lagið heyrðist í útvarpsþætti Benedikts
Gröndal, Óskastundinni, 23 . mars, flutt
af „kvartett“ en Björn R . Einarsson söng
samt allar raddirnar .14 Björn hafði leikið sér
að því að syngja lagið inn á lakkplötu hjá
Radíó- og raftækjastofunni við Óðinsgötu,
við undirleik Magnúsar Péturssonar .15
Sigfús var spurður að því í viðtali í Út
varps tíðindum hvort ekki væri skrýtið að
heyra lag eftir sjálfan sig hvar sem maður
kæmi . Hann sagði: „O, jú . En ég er farinn
að venjast þessu . Og manni þykir vænt um
að heyra það að maður hefur gert eitthvað
fyrir aðra .“ Aðspurður hvort hann væri ekki
orðinn ríkur af tónsmíðunum svaraði hann
því neit andi, sagðist hafa gefið lög sín út
sjálfur . „Þau eru minna keypt en þau eru
sungin .“16
Mánuði eftir frumflutning Litlu flugunnar
söng Ævar Kvaran leikari sjö lög Sigfúsar í
Útvarpið, við undirleik tónskáldsins .17
Á plötu í desember
Sumarið 1952 hélt Sigfús, ásamt Höskuldi Skagfjörð leikara og Soffíu
Karlsdóttur söngkonu, í ferð um landið .
Hópurinn nefndist Litla flugan . Haldnar
voru söngskemmtanir á um fimmtíu stöðum