Þjóðmál - 01.12.2012, Page 66

Þjóðmál - 01.12.2012, Page 66
 Þjóðmál VETUR 2012 65 á landinu við hinar bestu undirtektir . Á suma þessara staða höfðu ekki áður komið leikflokkar .18 Þegar hópurinn kom til Akur- eyrar var sagt um Sigfús í Degi: „Mun marga fýsa að sjá þennan óvenjulega fjölhæfa og skemmtilega listamann .“19 Litla flugan kom ekki út á plötu fyrr en í des ember 1952, í flutningi Sigfúsar .20 Svav ar Gests hefur sagt að lagið hafi verið á fyrstu plötunni sem fyrsta íslenska hljóm- plötufyrirtækið, Íslenskir tónar, setti á markað . Lagið var gefið út á plötu í Noregi haustið 1953 undir nafninu Vesleflua . Jens Book- Jenssen, sem nefndur hefur verið Bing Crosby Noregs, þýddi textann og söng lagið . Um svipað leyti samdi Sigurd Madslund danskan texta og gaf lagið út á nótum .21 Sigurd var af íslenskum ættum, systursonur Sigurgeirs Sigurðssonar biskups .22 Haft hefur verið eftir Sigfúsi að lagið hafi borist fljótlega til hinna norrænu landanna, nema Finnlands, orðið mjög vinsælt og mikið leikið . „Litla flugan er eina lagið á Íslandi sem getur kallast „hit“,“ sagði Sigfús í viðtali í Vikunni . „Það gerist ekki oft, jafnvel ekki hjá stórþjóðum .“ Á úrslitakvöldi í keppninni um Landslagið 1989 voru Sigfúsi veitt heiðursverðlaun, skrautfjöður úr gulli með lítilli flugu á .23 Sigfús tengdur Reykhólum Fleiri lög Sigfúsar en Litla flugan tengj-ast Reykhólasveitinni . Lagið Í grænum mó var frumflutt í Bjarkalundi árið 1964, í brúð kaupsveislu dóttur Þórarins Þór, og sálma lagið Ljósanna faðir líkna þú flutti Sig- fús í fyrsta sinn í Reykhólakirkju .24 Í húsinu á Reykhólum, þar sem Sigurður Elíasson bjó, er núna rekið Gistiheimilið Álfta land . Þar sem Sigfús samdi Litlu flug­ una er nú setustofa fyrir gestina .25 Heimildir 1 Svavar Gests: Flugan ódauðlega . Ríkisútvarpið, 20 . apríl 1987 . (DB-9903 .) 2 Svona er Sigfús Halldórsson, segir konan hans . Vikan, 5 . mars 1953, bls .10 . 3 Það lyftir sálinni að syngja við hljóðfærið . Rabbað við Sigfús Halldórsson tónskáld m .m . Vísir, 24 . október 1962, bls . 5 og 13 . 4 Gylfi Gröndal: Þegar sviðið fylltist af fólki . Spjallað við Sigfús Halldórsson . Vikan, 21 . desember 1967, bls . 10–11, 40–41 og 44 . 5 Sigurður Elíasson: Lækur tifar létt. Fjölvaútgáfan, 1993, bls . 189–192 . 6 Sigurður Elíasson: Litla flugan.Vísur og kvæði . Reykjavík, 1981, bls . 3 . 7 Þórir S . Guðbergsson: Lífsgleði, II . Hörpuútgáfan, 1993, bls . 155 . 8 Atli Heimir Sveinsson: Við eigum samleið . Dagskrá á sextugsafmæli Sigfúsar Halldórssonar . Ríkisútvarpið, 7 . september 1980 . (DB-9903 .) 9 Úr einu í annað . Mánudagsblaðið, 26 . febrúar 1952, bls . 8 . 10 Agnar Bogason: Það er eitthvað gott í öllum, en um hitt vil ég ekki vita . Rætt við Sigfús Halldórsson tónskáld . Mánudagsblaðið, 3 . mars 1952, bls . 2 . 11 Velvakandi skrifar úr daglega lífinu . Morgunblaðið, 7 . mars 1952, bls . 8 . 12 Thorolf Smith: Kvöldþankar . Vísir, 12 . mars 1952, bls . 5 . 13 Vinsælustu danslögin . Tíminn, 13 . mars 1952, bls . 2 . 14 Kvartettsöngur, en aðeins einn söngvari . Tíminn, 13 . mars 1952, bls . 8 . 15 Svavar Gests: Flugan ódauðlega . Ríkisútvarpið, 20 . apríl 1987 . (DB-9903 .) 16 Jón úr Vör: Heimsókn til Sigfúsar Halldórssonar tónskálds . Útvarpstíðindi, apríl 1952, bls . 25–27 . 17 Úr einu í annað . Mánudagsblaðið, 17 . mars 1952, bls . 8 . 18 Litla flugan kitlar nef Reykvíkinga nk . föstudagskvöld . Tíminn, 9 . október 1952, bls . 2 . 19 Litla flugan skemmtir á Akureyri . Dagur, 16 . júlí 1952, bls . 8 . 20 Tvær nýjar plötur með lögum eftir Sigfús Halldórsson komnar . Alþýðublaðið, 30 . desember 1952, bls . 8 . 21 Og kilder hendes lille næsetip . Tíminn, 29 . október 1953, bls . 2 . 22 Sumardagar í æsku minni . Vísir, 4 . september 1954, bls . 5 . 23 Litla flugan kom líkt og ég hefði aldrei spilað annað . Sigfús Halldórsson tónskáld og listmálari . Vikan, 1 . júní 1989, bls .14 og 16–17 . 24 Vilhelmína Þór: Hvernig Litla flugan varð til . Reykholar.is, 14 . apríl 2009 . 25 Hlynur Þór Magnússon: Gistiheimilið Álftaland . Gott verður betra . Reykholar.is, 31 . maí 2011 .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.