Þjóðmál - 01.12.2012, Side 75
74 Þjóðmál VETUR 2012
_______________
Höf . er meðlimur í InDefence .
fátækt ömurlegrar kreppu og atvinnuleysis
í byrjun velmegunar en má greiða gjaldið í
manns lífum eins og stríðsaðili . Heitasta ósk
Íslendinga hlaut að vera að því ógnarástandi
lyki og herlið hyrfi . Kommúnistar reka
fram til 1941 blygðunarlausa Moskvulínu
áróðurs gegn hernáminu vegna tímabundins
bandalags Stalíns og Hitlers og stimpla þá
sem voru í hernámsvinnu „landráðamenn“ .
Þá er það að heitið „hernámsandstæðingar“
varð til og síðar nota það andstæðingar
NATO-aðildar og varnarliðs á Íslandi .
Harð asta stjórnmálabarátta lýðveldistím ans
trygg ir að Ísland verður stofnaðili að NATO
1949 og að gerður er tvíhliða varnar samn-
ingur við Bandaríkin 1951 .
Stjórnmálaleg kjölfesta í mesta átakamáli
á vettvangi þjóðmála myndast undir for ystu
Sjálfstæðisflokksins . Áróður vinstri öfga-
manna er mjög óvæginn, einkum persónu-
svívirðingar Þjóðviljans . En Moskvugrýlan
hefur óneitanlega þau jákvæðu áhrif að þétta
raðir liðsmanna vest ræns varnarsamstarfs
í Varðbergi og Samtök um um vestræna
samvinnu .
Keflavíkurstöðin varð helsta geo strateg-
íska viðnámsstaðan á GIUK-lín unni svo-
nefndu gegn stórauknum hernaðar um-
svifum Sovétríkjanna á Norðursvæðinu
ógn andi Íslandi . Í Keflavík var mest 3000
manna liðstyrkur sem fljótt mátti auka,
sveit af P-3C Orion-eftirlitsflugvélum og
allt að 18 F-15-orustuþotur ásamt bensín-
birgða- og AWACS-radarflugvélum . Mjög
öflug þyrluflugbjörgunarsveit var í Kefla -
vík með 5–6 þyrlum mönnuðum hin-
um færustu flugmönnum sem oft komu
Íslendingum til bjargar . Fullkomið radar -
kerfið (IADS) yfir landinu og ná lægu haf-
svæði var samtengt við NATO-netið og
var mannað af sérþjálfuðum Íslend ing-
um . Svonefnt Sound Surveillance System
(SOSUS) var til eftirlits með kaf bát um .
Yfirflug sovéskra orustu- og sprengju -
flugvéla í íslenska loftvarnasvæðið (
MADIZ) var mest á 9 . áratugnum, um
200 eitt árið .
Því miður vanræktu ríkis stjórnir þessa
tíma alveg að koma upp stofn ana legri sér-
fræði kunnáttu Íslendinga í öryggis- og
varn ar málum með föstu starfsliði sem
hefði her þjálfun, sérhæft háskólanám eða
starfs reynslu í NATO . Áróður „friðar-
sinna“ eyðilagði mikið fyrir því þarfa máli
sem gerði íslenskum stjórnvöldum kleift
að styðjast við eigið sjálfstætt ógnarmat .
Hernaðarviðveru Bandaríkjanna á Ís landi
lauk í október 2006 . Ákvörðun Donalds
Rumsfeld varnarmálaráðherra um brottför
frá Keflavík var hugsanlega eitt hvað til-
komin vegna gamallar óvildar út af verk-
töku málum og neikvæðrar afstöðu okkar
til kostn aðarþátttöku í vörnum landsins og
reksturs flugvallarins . Van hugsuð stefna var
leiðrétt en of seint .
Ríkisstjórnir Íslands höfðu árangurslaust
óskað eftir áframhaldi varanlegum lág-
marks loft vörnum . Þetta var reyndar talið
lík legt því gríðarlega mikil fjárfesting var á
10 . ára tugnum í flugbrautum, stjórnstöðv-
um, olíu birgðastöðinni í Helguvík, sér-
stök um nýjum flugskýlum, endurnýjun
íbúða o .fl . Kefla vík, sem er langstærsti og
fullkomnasti flug völlurinn að öllum búnaði
á norður slóðum, lenti óvænt á Íslendingum
— fljótlega hjá fyrrum „hernáms “-andstæð-
ingum!! Áhugaleysi stjórnvalda um þessi
mál lýsti sér í að Varnarmálastofnun var
lögð niður . Áhugi vestra um varnir Íslands
dvínar ef ekki er skilningur og áhugi okkar
megin . Æskileg markmið okkar eru: Aukin
loftrýmisgæsla, sameiginleg flug björg unar-
sveit Landhelgisgæslna Banda ríkj anna og
Íslands og Norðurvíkingsheræfingar .
Við brottför varnarliðsins varð strateg iskt
tómarúm — power vacuum — á Norður-
Atlantshafssvæðinu . Ísland, í fjarlægð
frá öðrum, varð þar með eina aðildarríki