Þjóðmál - 01.12.2012, Page 78
Þjóðmál VETUR 2012 77
Þ jóðmál birti á dögunum ritdóm um bók mína, Kredda í kreppu . Hann ritar
Geir Ágústsson, verkfræðingur og ákafur
frjáls hyggjumaður af austurríska skólan um,
hallur undir menn á borð við Ludwig von
Mises og Murray Rothbard .1
Bara hentistefnumaður?
R itdómari stiklar á stóru og gefur væg-ast sagt skáldlega mynd af skoðunum
mínum . Í bókinni segist ég fylgja „miðjunni
hörðu og hentistefnunni mjúku“ (Kredda í
kreppu (héðan í frá „KíK“), bls . 27–42) . En
Geir nefnir hvergi miðjuna hörðu, hvað þá
staðhæfingu mína um að frjálslynd jafnaðar-
stefna sé miðjuhörkustefna og mér mjög að
skapi . Ekki heldur að ég segi að það sé efastef
í lífsskoðun minni og að stefið megi heyra í
öllu sem ég skrifa um stjórn mál .
Í stað þess talar hann eins og ég boði
hentistefnu einvörðungu og staðhæfir svo
að slík hentistefna sé óafsannanleg (Geir
(2012), bls . 86–87) . En ég ræði þennan
vanda í bókinni og segi beinum orðum: „Ef
hægt er að sýna fram á að alfrjáls markaður
sé eini sæmilegi efnahagskosturinn sem völ
er á þá verður miðjumaðurinn að viður-
kenna að efnahagsstefna sín hafi beðið skip-
brot . Og ef hentistefna mín sýnir sig að
vera ávísun á framsóknarmennsku af verri
gerð inni þá er betra að finna sér járnharðar
reglur um gott og slæmt í pólitík .“ (KíK,
bls . 40–41 .)
Sem sagt, stjórnmálakenningar mínar eru
hrekjanlegar, gagnstætt hinum hátimbruðu
speglasjónum austurríska skólans í hag-
fræði sem hvergi snerta jörðina . Enda hafn-
aði Ludwig von Mises því að hagfræði væri
reynslu vísindi, hún væri rökfræði ákvarð-
anna . Þau grundvallarsannindi sem gilda
um athafnir og efnahagslíf væru þess eðlis
að hvorki væri hægt að sanna né afsanna
þau . Svo ætti að leiða allan sannleikann um
efna hag inn röklega af þessum grund vallar-
for send um, reynslan kæmi málinu lítið við .
En er hægt að sannreyna þessar kenning-
ar? Ég efast um það og fæ ekki betur séð
en að reynslan verði að leika lykilhlutverk í
hagfræði (sjá nánar KíK, bls . 53–55) .
Stefán Snævarr
Geir og draumur
útópistans
Ritdómi svarað