Þjóðmál - 01.12.2012, Síða 81

Þjóðmál - 01.12.2012, Síða 81
80 Þjóðmál VETUR 2012 „Leitið og þér munið finna“, frjáls- hyggjumenn gefa sér að ríkið eigi sök á vel flestum djöfuldómi, þeir hætta ekki fyrr en þeir finna einhvern vondan ríkisþátt . Enda gefur Geir sér að hrunið íslenska og heimskreppan hljóti að hafa verið alfarið sök ríkisins . Ég er ekki eins staðhæfingasamur og hann en leiði að því getum að einkavæðing, m .a . afnám aðskilnaðar viðskiptabanka og fjárfestingabanka hafi átt sinn þátt í ósköpunum . Um leið viðurkenni ég að ríkið sé tæpast saklaust af þessum ósóma (Kík, bls . 101–118) . Til að bæta gráu ofan á svart staðhæfir Geir að ég firri Tony Blair og Bill Clinton af allri ábyrgð á heimskreppunni (Geir (2008), bls . 86) . En ég nefni þessa kappa ekki aukateknu orði í umfjöllun minni um kreppuna . Talandi um staðhæfingasemi þá stað- hæfir Geir án raka að útreikningar Stefáns Ólafssonar á tekjudreifingu séu rangir (Geir (2008), bls . 87) . Hann staðhæfir líka án raka að finna megi gagnrök gegn gagn rýni minni á austurríska skólann í ritum sem ég hafi ekki lesið (Geir (2008), bls . 88) . Þó má telja að Geir hafi e .k . rök fyrir máli sínu er hann segir rangt að bandaríska ríkið hafi fundið Netið upp . Það hafi verið samstarfsverkefni milli Pentagon og einkafyrirtækisins Xerox, hann meira að segja vitnar í heimildir! (Geir (2008), bls . 87) . Spurt er: Er ekki Pentagon ríkis fyrir- tæki? Spurt er áfram: Var ekki maðurinn sem fann heimsvefinn upp breskur vísinda- maður sem vann hjá ríkisfyrirtæki?6 Geir talar eins og ég hafni allri tölfræði sem er tóm vitleysa, ég læt mér nægja að vara menn við oftrú á staðtölur og bendi á að oftast nær er erfitt, jafnvel útilokað, að finna þær hinar kórréttu tölur . En séu menn nógu yfirvegaðir má græða mikið á staðtölum . Geir talar í hæðnistóni um áherslu mína á reynslurök . Spurt er: Beitir Geir ekki reynslu rökum í starfi sínu sem verk- fræð ingur? Ef ekki þá þori ég ekki að kaupa af honum verkfræðiþjónustu . Það þýðir ekki að reynslan arti sig með sama hætti í verkfræði og í mannvísindum, öðru nær . Gildismat og túlkun marka reynsluna dýpri sporum í mannvísindum en náttúruvísindum . Það þýðir heldur ekki að reynslan hljóti að vera grundvöllur þekkingar heldur að við höfum ekki upp á neitt betra að bjóða en reynslurök þegar velflestar gerðir þekkingar eru annars vegar (undantekningarnar eru hrein stærðfræði og hrein, formleg rökfræði) . Er markaðsfrelsi mögulegt? Geir segir sigrihrósandi að þróunin í BNA á síðustu áratugum sé alls ekki dæmi um aukið markaðsfrelsi því ríkið hafi þanist út á þessum tíma (Geir (2008), bls . 88) . Ekki eitt orð um að ég tók undir þær staðhæfingar John Grays um að tilraunir til að auka markaðsfrelsi séu dæmdar til að misheppnast því að þær verði aðeins framkvæmdar með því að efla ríkisvaldið (KíK, bls . 74) . Gray veit þetta manna gerst enda var hann ráðgjafi Thatchers og bendir á að markaðsvæðingu fylgi oft skattahækkanir enda þurfi að borga fyrir markaðsbrestina . Ég nota sem dæmi það hvernig herinn nýsjálenski varð að bjarga fólki í Auckland eftir fimm vikna rafmagnsleysi í kjölfar mestu einkavæðingar á raforku sem sagan greinir frá (Kík, bls . 79) . Eitthvað hefur herútboðið kostað skattgreiðendur . Auk þessa segir Gray að markaðsvæðing útheimti yfirleitt hreina valdbeitingu, t .d . hafi Bretland verið markaðsvætt með því að taka almenninginn eignarnámi, gera hann að einkaeign og hrekja bændur, sem áður nýttu landið, burt með ofbeldi . Einar Már
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.